Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1906, Síða 44
46
Séra Einar var sonur Einars prófasts Illugasonar, er var prestur
í Kjósinni 1642—85, prófastur í Gullbringu- og Kjósar-prófastsdæmi
frá 16571), dáinn 20. febr. 1689. Illugi’ átti Sesselju Árnadóttur og
var lögréttumaður; hann var bróðir Orms sýslumanns í Eyjum; þeir
bræður voru synir Vigfúsar sýslumanns á Kalastöðum, er var son
Jóns Pálssonar, bróður Alexíusar ábóta í Viðey.2) Séra Einar 111-
ugason átti Guðríði dóttur Einars Teitssonar í Ásgarði og Höllu Sig-
urðardóttur; auk Einars áttu þau séra Snæbjörn, er var prestur á
Reynivöllum í Kjós eftir föður sinn3), og Guðríði4). Séra Einar
Einarsson var í Skálholtsskóla og sigldi síðan til Kaupmannahafnar;
hann var skrifaður í stúdentatölu við háskólann 30. nóv. 1669 og
var Christ. Ostenfeld hans »præceptor privatus«5). Hann dvaldi 2
ár í Kaupmannahöfn6) og hefir þá verið tímakorn í Svíþjóð á þeim
árum7). Er hann kom aftur varð hann biskupsskrifari í Skálholti
hjá Brynjólfi biskupi Sveinssyni, síðan heyrari (conrector) við skól-
ann i 3 ár, vígðist 1675 og var því næst 2 ár kirkjuprestur í Skál-
holti8). — Segir í Espólíns Árb.9) að hann hafi verið helzt hjá
Brynjólfi biskupi til skemtunar fyrir andlát hans, »ok mest um kvöld
hins fjórða ágústí, ok um nóttina fram til apturbirtu*. — Hann fékk
Garða á Álftanest 1678 eftir séra Þorkel Arngrímsson, er dó 167710).
1680 kvæntist hann Þóru dóttur síra Torfa prófasts í Gaulverjabæ
Jónssonar frá Núpi Gissurarsonar11) og Sigríðar dóttur Halldórs Olafs-
sonar lögmanns12 * *). 1681 varð séra Einar prófastur í Gullbringu- og
Kjósar-prófastsdæmi eftir föður sinn. Hann var »gáfumaður vel-
lærður, kunne að haga sier epter tíðenne. Var og einn af þeim 4.
próföstum, sem byskupenn M. Þórður tók með sier, til að saman-
taka Concepteð Nýu laganna, epter annare bók Norsku laganna Ao
1689 epter kóngl: Majt(l befalningu«18).
‘) Sbr. Prestatal og prófasta á Islandi eftir Svein Nielsson, V. 9.
2) Islenzkar ártiðeskrár eftir Jón Þorkelsson, XXY. ættartafla.
s) Prestatal og prófasta 4 Islandi eftir Svein Níelsson, V. 9.
4) Biskupa sögur II, 645.
6) Sbr. Universitetets Matrikel og Kommunitetets Matrikel.
6) Yfirferð Skálboltsstiftis s. 207 (sbr. bér að framan).
’) Nicol. Dal. Dissertatio de Antiquitatibus Svecicis og Hist eccl. Pinni Job.
III. bls. 579.
8) Biskupa sögur II, 545; Yfirterð Skálboltsst. s. 207; Hist. Eccl. III. 579.
•) VII. D., s. 84.
,0) Yfirferð Skálboltsst. s. 207. Hist. eccles. III, 579. Esp. Árb. VII. 89.
“) Um alla þá ætt sjá Safn til sögn íslands I, G48—9.
**) Yfirf. Skálboltsst. s. 207. Bisk. sögur II. 645.
18) Yfirf. Skálboltsst. s. 207, sbr. Hist. eccl. III, 675 (þar er ártalið skakt
prentað 1669).