Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1906, Page 45

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1906, Page 45
47 Eftir dauða séra Ólafs Jónssonar í Hítardal fékk séra Einar konungl. veitingu fyrir því brauði 16901), »en kom þangað þó ei, þar hann deyðe það sama haust, nálægt Allra H. mo 41. árs gam- all, úr þeirre mannskiæðu landfarsótt, sem þá geck yfer. Var hann þá á heimreið úr skifttum frá Gaulverjabæ epter Sr Torfa Jónsson. Komst að Hólme fyrer sunnan Hellersheiðe, lá þar fáa daga í strangre sótt, sem hann leidde til bana«2). Allra heilagra messa er 1. nóv., en síra Einar dó að því er segir í ártíðaskrá séra Hannesar Björns- sonar 21. okt. 16903). í ártíðaskrá Sig. lögm. Björnssonar stendur 21. okt. 1691, en þar er ártalið rangt4). í Árnasafni (A. M. 96, 8vo, bls. 23—37 r) er til í handriti »Lýfs Historia þeýrrar Gofugu og lofsverðugu Hofðings kvinnu Helgu Magnus döttur Ad Brædratungu. — Samantekin af Heýðarlegum kiennemanne Sr Einare Einarssine«. Þóra lifði ekki lengi mann sinn. »Hún ól Tvíbura epter hann dauðann, sialfann Jóladagenn, hlutu báðer skírn, dóu báðer og hún einnenn nockru seinna«5 б). Þóra Torfadóttir andaðist 1. jan. 16918). Þau Einar og Þóra áttu auk tvíburanna, er hún fæddi síðast og dó af, 5 börn önnur7). Séra Jón Halldórsson skýrir þannig frá þeim8): »(1° Brinjólfur, gott mannsefne, útlærður, dó ógiftur í bólunne. (2° Málfríður seinne kona Sigurðar sýslumans eldra. (3° Ingebiörg, kona Sigurðar syslumans yngra, sonar Sigurðar lögmans Biörnssonar. (4° Margret, átte fyrst Benedict Magnusson Beck syslumarm í Hegra- ness þínge. Síðar Guðmund skólameistara son byskups Hr. Steins, drucknuðu báðer vofeiflega, sá fyrre á siötta sunnudag epter páska 1719 í Hieraðsvötnonum, hinn siðare á Skagaflrðe Ao 1723. (5° Hall- dóra, giftest ecke«. ‘) Yfirf. Skálholtst. s. 207. Hist. eccl. III. 579, Prestatal VII. 6; shr. þó Isl. ártíðaskr. 254 (þar segir 24. ág. 1689). а) Yfirf. Skálholtst. s. 207, sbr. ísl. ártíðaskr. og Hist. eccl. 1. c. 3) ísl. ártiðaskr. hls. 197; shr. Esp. Árb. VIII. 25. ‘) ísl. ártíðaskr. s. 219. *) Yfirf. Skálholtsst. s. 207; shr. Isl. ártíðaskr. s. 197. б) ísl. ártíðaskr. 193 og 197; á bls. 219 segir að hún hafi dáið 1. des. 1691, en það er rangt, — og sömul. það er segir í Esp. Árb. VIII. 25 og Safn t. s. ísl. I. 648—9, að hún hafi dáið 1690. 7) ísl. ártíðaskr. 187; Esp. Árb. VIII. 25. 9) Yfirf. Skálholtsst. s. 207.

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.