Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1918, Side 2
2
sögu, 119. kap. — Víst er það, að sá bardagi var á Ljósvetninga-leið,
utan þinghelgi þó, og líklegt er, að hún hafi þá verið háð vestar en
í Þingey, og þó ekki á þingstað Eyfirðinga (Vaðla-leið eða Vöðla-
þingi), eða með öðrum orðum í Fnjóskadalnum. A það benda orð
Þorgeirs: »— höldum saman leiðir allar, þó at norðr sé meirmínir
þingmenn®1 2 3.
Maurer áleit, að þingstöðin í Leiðarnesi sje frá því síðar og að
LjÓ8vetninga-leið hafi verið háð í Þingey, en Vilh Finsen fjelst á
skoðun Kr. Kálunds8.
En Kálund álítur ekki að eins að haldið hafi verið leiðarþing
(Ljósvetninga-leið) í Fnjóskadalnum (í Leiðarnesi), heldur hafi einnig
þau 2 vorþing, sem hann álítur að sagt sje frá í 4. og 10. kap. af
Ljósv.s., verið háð þar; hann ætlar, að þar hafi því máske verið
háð vorþing um langt tímabil fyrir litinn hluta Þingeyinga, ogjafn-
vel um eitt skeið vorþing fyrir alla þinghána, þ. e. Þingeyjarþing.
— Vilh. Finsen fjelat sömuleiðis á þessa skoðun og skilur frásögnina
í 4. kap. Ljósv.s. eins og Kálund, en ekki áleit hann þó, að nokkur
lítill hluti, svo sem eitt goðorð, hefði haldið þar þing8.
Þessi niðurstaða þeirra Kálunds og Vilh. Finsens um löglegt
vorþinghald í Fnjóskadalnum, samkv. þessum frásögnum Ljósv.s.,
skal nú athuguð lítilsháttar.
Frásögnin í 3. og 4. kap. af Ljósv.s. er framhald af frásögninni
i 1.—2. kap., deilum þeirra Þorgeirssona við föður þeirra og Guð-
mund rika. Segir frá þvi i 3. kap., að Þorgeir skildist við málið
eftir bardagann á Ljósvetninga-leið, og að synir hans óhelguðu Söl-
mund, er þeir vógu á leiðinni. Næsta vor áttu þeir fund og búa
til vigsmálið eftir Arnór úr Hlíð, er veginn hafði verið í leiðarbar-
1) Þorgeir talar hér um Reykdæla-leið sem eina af þeim þrem leiðum, er hann
legði til að haldnar yrðn saman. Reykdæla-leið virðist því hafa verið skapþing,
svo sem hinar löglegu leiðiri Norðlendingafjórðnngi voru, Húnvetninga-leið, háð á Þing-
eyrum, Skagfirðinga-leið, háð í Hegranesi, Eyfirðinga-leið og Ljósvetninga-leið, háðar sem
áður var sagt og enn mun skýrt frá. Nöfnin Ljósvetninga-leið og Reykdæla-leið benda og
helzt til, að i stað einnar Þingeyinga-leiðar hafi verið háð þessi 2 leiðarþing, hvort
fyrir sinn hluta hjeraðsins, hinn vestari og eystri. Engin ákvæði i Grágás virðast
þó beinlinis gera ráð fyrir slíku fyrirkomulagi, en vegua þess hve þingháin var afar-
viðáttumikil er ekki óliklegt, að lögrjettuleyfi hafi verið fyrir því hjer. Bent er á,
hvar Reykdæia-leið hafi verið háð, og heitir þar Leiðarhóll; sjá Arb. Fornl.fjel.
1901, bls. 13—14 (m. uppdr.) Hvergi er talað um þriðja leiðarþingið í þessari þing-
há, enda gat verið mikil bót í fyrir menn að bafa þau tvö, þótt ekki væri þau
fleiri, t. d. hvert fyrir Binn þriðjunginn (goðorðið). — Sbr. ennfr. Kr. Kálund I. B.
II, 142—43 og 164, og V Finsen, Inst., bls. 86 og 82.
2) Inst. bls. 85 og 1. neðanmálsgrein á bls. 86.
3) Inst. hls. 85—86 og 2. neðanmálsgrein á bls. 86.