Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1918, Side 11
11
fara yfir þveran Bárðardalinn hjá Stóruvöllum og aíðan Hellugnúpa-
8karð, eða þar sem leið liggur nú, Vallafjallsveg, yfir að Sörlastöð-
um í Fnjóskadal og svo ofan Fnjóskadal, fyrir norðan og austan
Bleiksmýrardal; er krókur að fara til hans, og verður þetta því
einnig óeðlilegt. Er og ólíklegt, að þeir hafi farið mjög langt frá
öllum mannabygðum á þessum slóðum, úr því að þeir, svo sem
enn verður sagt, »ríða ofan eptir Fnjóskadal*. Næsta setning á eftir
orðunum »ok fyri neðan heiði< er svo: »Ok var þar víða skógi
vaxit*. Mun bjer átt við »fyri neðan heiði«, þ. e. efst í Fnjóska-
dalnum. — Síðan kemur þetta: »Ok ríða þeir ofan eptir Fnjóskadal;
en þeir Þórkell fóru á Akureyri, því at þeir höfðu tjöld samlit við
skóga; þeir finnaz þar sem ákveðit var; varð ok engi maðr varr við
ferð þeira«. — Setningarnar: »Ok varþarvíða skógi vaxit, ok ríða
þeir ofan eptir Fnjóskadal« — »því at þeir höfðu tjöld samlit við
skóga« heyra hjer saman, en setningunni: »en þeir Þórkell fóru á
Akureyri«, er ilia skotið inn. Er þó alt vel skiljanlegt; Þorkell og
þeir 5 fara yfir þveran dalinn úr Ljósavatnsskarði, en »ílokkrinn
allr annarr« riður ofan dalinn án þess menn verði varir við. Fyrir
menn, sem ætluðu að fara á Vaðlaþing, var þetta sjálfsögð leið, og
verður ekki sjeð, hversu liggja kunni í þessari frásögn ótvíræð
bending um, að þeir ætli ekki á Vaðlaþing, heldur á einhvern þing-
stað í Fnjóskadalnum. Orðin »þeir Þórkell fóru á Akureyri* ogsið-
an hin: »Þeir finnaz þar sem ákveðit var«, benda ótvírætt á að
hvortveggja flokkurinn hafi riðið yfir Vaðlaheiði. — Það var sjálf-
sagt fyrir meginflokkinn að fara ekki sunnarlega yfir heiðina, og
ríða ofan Eyjafjörð, heldur ríða ofan skóginn i Fnjóskadal og fara
þvert yfir hana hjá Kaupangi. — Það verður ekki sjeð neitt óeðli-
legt eða »óskiljanlegt« (Kálund) við það, að þeir Þorkell fara á Akur-
eyri. Akureyri er skamt frá þingstaðnum að heita má og gátu
þeir Þorkell vel átt erindi þangað áður en þing hófst; verður ekki
sjeð, að þeir hafi verið svo naumt fyrir, að þeir hafi ekki hæglega
getað komið því við. Frásögnin um, að »þeir Þórkell fóru á Akr-
eyri«, bendir einmitt á, að þeir hafa riðið yfir Vaðlaheiði, og kemur
vel heim við það, að þeir ætla að vera á Vaðlaþingi. Það virðist
því öldungis ástæðulaust að vera að leita, þessarar frásagnar vegna,
að nokkurri Akureyri í Fnjóskadal, sem þar er ekki heldur til (sbr.
Isl. Besk. II, bls 148). Hvers vegna þessi Akureyri, sem hér er
nefnd, geti ekki verið Akureyri í Eyjafirði, eftir sambandi sögunn-
ar«, eins og útgefandi hennar 1880 (Guðm. Þorláksson) hjelt fram
(bls. 147, i aths.), verður með engu móti skilið1. — »Þeir Þórkell
--------.- »
1) 1 handr. 616, 4to, í Kalls safni i konnngl. bókasafninn i Kaupmannahöfn