Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1918, Síða 20
20
henni eru sýnilega búin til eftir 3. og 4. 1. í 112. er. (B.), sem áður
var rætt um. — En hvort sem taka má þannig saman eitt heilt
6 lína ljóðaháttarerindi, eða hjer er um sundurlausa vísnastúfa að
ræða, mun þó rjett skoðun F. J., að teija þetta alt óupprunalegt á
þessum stað.
Loks er síðasta erindið í Hávamálum. I því eru 8 línur, en
eins og F. J. hefir bent á, eru 4. og 7. 1. óupprunalegar. Hjer er
4. 1. sennilega frábrigði af 3. 1. og 7. 1. sýnilega frábrigði af 8. línu.
Grímnesmál.
Síðasta lína í 45. er. (B.) er með frábrigði, sem F. J. telur
óupprunalega línu:
Æges beTcke á.
Æges drékko at.
Skírnesmál.
t 10. er. er frábrigði við fyrri langlínuna (3.1.), sett á eftir henni:
úreg fjöll yfer,
þnrsa þjóþ yfer.
Síðari línan dæmd óupprunaleg af F. J.
í 27. er. er sömuleiðis frábrigði við 3. 1.:
horfa heime ór,
snugga heljar til.
Þetta er svo í kon. bók (Eddu), en ekki 748 (4to í Árnas.), þar
eru línurnar dregnar saman í 1 1, sett «ok« fyrir «heime ór«. —
F. J. álítur með réttu að fyrri línan sje frumleg og rjett, en hin
viðbót.
í næsta er., 28., kemur sama fyrir:
á þik Hrímner hare,
á þik hotvetna stare.
F. J. telur síðari línuna ófrumlega. Sama er að segja um
sams konar fyrirbrigði í 30. er., frábrigði frá 6. 1., sem bætt er
aftan við hana:
kranga kostalaus,
kranga kostavön.
Þó virðist síðari linan hjer öllu upprunalegri en sú fyrri, eiga
betur við.