Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Árgangur

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1928, Blaðsíða 18

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1928, Blaðsíða 18
18 frá þvi síðar (Árb. Fornl.fél. 1902. 4). — En tilgátan í Árb. Fornl.fél. 1902, 4—5, um nes sem tanga og »vígið« nokkru norðar en Orustu- hólar (þeir eru tveir), álít ég sé í þessu sambandi villandi. — Um það þarf varla að efast, að Gunnarssteinn sé sá, sem haldinn hefir verið, á viklausum olnboganum fyrir norðan ána, og er í fyllsta sam- ræmi við söguna: »en ríða munum vér fram at Rangá, í nesit«; og: »hlaupu vér at honum fram allir senn«. Eyjar Gunnars á Hliðarenda. Njála getur þess, að Gunnar á Hlíðarenda hafi tvö árin (989—90?) verið við heyverk niðri í eyjum, og viðhefir sagan jafnan fleirtöluna. Almennt mun hafa verið litið svo á, að átt sé við Móeiðarhvols-land, eins og greinir í Árb. Fornl.fél. bera með sér (1888—92, 49—50, 1896, 3—5, 1902, 8—9); hefir ekki tekist að laga það í meðförum.— Sigurður Vigfússon kallar slægjulandið Móeiðarhvols-eyrar (Árb. 1888—92, 49), en slægjur þær hafa frá ómuna-tið verið kallaðar engjar eða Móeiðarhvols-engjar, en aldrei eyjar eða eyrar, svo menn viti. Það er einnig talið víst, að eyjan, sem engjarnar eru í nú, hafi verið áföst heimalandinu, mýrinni, og í keldu þeirri sem Þverá féll í síðar, svo að eyjan myndaðist, hafði sætið sézt að heiman. — Fyrir austan Móeiðarhvols-engjar taka við Dufþekju-engjar. Tilgátan um heyverk Gunnars að Móeiðarhvoli er ekki ósenni- leg að því leyti til, að þeir Gunnar og Kolskeggur keyptu eða buðu fram við votta fé fyrir 'U úr Móeiðarhvoli, og að þetta gerðist fyrir heyverkin. Munu menn hafa almennt bundið sig við það. Að öðru leyti er ekki unnt að líta á samband sögunnar við þau. — Þennan jarðarpart hafði móðir þeirra átt, en hann gengið til Starkaðar undir Þríhyrningi í sonarbætur, ljósast fyrir Börk og Þorkel, sem féllu við Gunnarsstein. Hefði Gunnar heyjað á Móeiðarhvols-engjum, hefðu allar likur verið til, að hann hefði riðið upp með Þverá, hafi þar þá verið fært fyrir keldum og foræði. En á þeirri leið er hvergi hæð til fyrirsátar, fyr en uppi í þéttbýlinu, og er sú leið þar með frá-dæmd. En að því slepptu liggur næst að ætla honum hina léttustu leið, austur há-völlinn og niður, um Fiská, í Krappa-sporðinn, fyrir norðan Vatns- dalsfjall, »og er ekki einu sinni tímamunur« á því að fara þá leið og hina fyrnefndu (segir Sigurður Vigfússon í Árb. 1888—92, 50). Þar fyrir hefði hann ekki átt að ríða norður og niður að Þorgeirsvaði;. þar, austan-megin, eru eyrar, en ekki vígi, og er víða betra að verj- ast, og því síður hefði hann átt að ríða frá Skútuvaði. Það nær engri „átt að ætla það um ferð Gunnars í sambandi við Þorgeirsvað, að
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.