Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1928, Blaðsíða 73
73
mest þau máttu. Þegar gesturinn kom í hlaðið, var kerlingin komin
inn í baðstofuna, en karl var að fara í aðra brókarskálmina í bæjar-
dyrunum! —
Norðan við Flæðuna hefir Langagróf (399) upptök sín; rennur
hún út í Helgána hjá Strútshver. Austan við hana, utan-til og suður
á móts við Syðstahver (austur að Syðstahverslæk) er Brekknakots-
tunga (400) og er veitt á hana volgu vatni; er það bezta engi í
Brekknakotslandi.
Rétt ofan við götuna suður-frá hverunum, neðst í brekkunni, er
lítið holthróf með melbletti framan í; það heitir Stórahall (401).
Spölkorn sunnar kemur upp smálækur neðst í brekkunni og er kall-
aður Bensalœkur (402). Litlu sunnar er annar lækur, er hefir upptök
sín æði langt uppi í brekkunni; heitir hann Króklœkur (403). En
rétt norðan-við túnið umhverfis svarðargrafirnar er nefnt Hallið
(404). Þaðan eru grasgeirar uppeftir brekkunni og vanalega
nefndir Geirar (405). Norðaustur-frá túninu eru grónar rústir, er nefn-
ast Geitnakofi (406). Norður-frá Geirunum efst eru Sléttubalar (407),
vaxnir grængresi og smáviði. — Og út- og upp-af þeim er vel gróin
brekkan og eru þar smálækir og mýrlendisblettir litlir; heitir þar
Grœnahlíð (408). Bœjarlœkur (409) kemur eftir gili beint ofan að
bænum. Litlu sunnar er annað gil og eftir því rennur Hesthúslœkur
(410) ; það af túninu, sem er sunnan við hann, heitir Hesthústunga
(411) , en Hesthúseyri (412) heitir þar niður-af.
Um 200 stikum sunnan-við túnið er Kviagil (413) og nær það
ofan af brún; fram-af því heitir Kvíagilseyri (414). Þar sem Brekkna-
kot hverfur sýn, þegar farin er gatan suður með fjallinu, er nefnt
Hvarf (415). Sunnan-við bæinn (í túninu) eru rústir af kofa, sem hét
Vigfúsarkofi (416); stóð hann til skamms tíma. Upp-af honum er á
túninu hesthús og þar, sem það stendur, er nefnt Breiðablik (417).
XI. Örnefni i Klambraselslandi.
Úti í fjallinu, um það bil miðja vegu milli Brekknakots og Klambra-
sels, er Hólkotsgilið (418); og upp af því, á brúnunum, Hólkotsbotnar
(419). En beint vestur-frá því, handan við mýrina, er gamalt eyðibýli
Hólkot (420). Er túnið nú afgirt og slegið frá Klambraseli. — Vestur-
af því er kringlóttur grasblettur á móunum, er heitir Viðrar (421) og
utan undir Hólkoti Hólkotslág (422). — Helghóll (423) heitir hóll þar
suður með Kvíslinni, og vað hjá honum Helghólsbrot (424). Drættir
og hyljir í Kvíslinni, taldir að norðan og suður-eftir, heita þessum nöfn-
um: Straumbrot (425), Vikdráttur (426), Gunnarsbeygja (427).—Sel-