Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1928, Blaðsíða 71
71
(353) á víð og dreif, og á milli þeirra eru Melhólar (354). Upp-af
þeim, alveg upp undir brún, eru Töðufletir (355), grasi vaxnir hjallar.
Sunnan-við þá er Dimmagil (356); nær það ofan af brún og niður
að hverunum. Sunan-við það, nærri því efst (við krókinn), er Dimma-
gilshnúta (357), en utan-við það neðan-til (út og upp af hverunum)
eru Geirar (358).
Engi Stóru-Reykja er aðallega sunnan- og austan-við ána; þar
heitir Flekkur (359), slétt engjastykki, og ofan-við Þvottahverinn er á
mýrinni Hádegisholt (360). Suður með ánni, rétt utan-við stíflugarð-
inn, er Brúnsmór (361), en uppi undir fjallsrótunum er Svikahjalli
(362), líklega nefndur svo vegna »hætta«, sem á honum eru fyrir
sauðfé. Rétt utan- og ofan-við hann er Illilcekur (363), nefndur svo
fyrir það sama og hjallinn. Út-við Flekksgrófina er nefnt Aðhald
(364); hefir þar verið hlaðinn veggur og kreppt að fé á grófarbarminum.
í Helgánni sunnarlega, skammt utan-við Strútshverinn, var pollur
er Náðargat (365) hét. Sunnan- og neðan-við Stóru-Reykjabæinn var
vað, sem Kýrvað (366) hét, og úti i ánni, niður frá Álfhól, er Hrossa-
pollur (367); skammt þaðan utan-við er Bótarvað (368), og rétt utan-
við það er við ána að vestanverðu tóftarbrot, er nefnist Gvendar-
stekkur (369).
IX. Örnefni á engi Garðræktarfélags Reykhverfinga,
neðan-við hverina og út-af þeim, eru þessi:
Sigmundarpartur (370) hét áður yzta stykkið af enginu (suður- og
upp-af gamla stíflugarðinum). Litlu-Reykjapartur (371) hét rétt utan-
við Yztahverslœk (372); það er nú innan girðingarinnar mestallt.
Sunnan-við lækinn (milli hans og Uxahverslœks) (373) heitir Vota-
tunga (374); á hana er veitt volgu vatni úr hverunum og sprettui'
hún afbragðsvel. Oft orðin hvanngræn, þegar mýrarnar í kring eru
enn gráar og gróðurlitlar. Sunnan-við hana er Litlatunga (375), (sprett-
líka ágætlega) og þar sunnan-við Stekkjartunga (376), og vestan- og
sunnan-við hana rennur Syðstahverslcekur (377). Hveravöllur (378)
hét áður slétt, aflíðandi grund á milli Yzta- og Uxa-hvers; nú er
búið að plægja hana upp að mestu og gjöra að jarðeplagörðum. En
viðarmóa, sem voru milli Uxahvers og Syðstahvers, er búið að bylta
um og gjöra að graslendi. — Árið 1918 var reist nýbýli við hver-
ina og býr þar framkvæmdastjóri Garðræktarfélags Reykhverfinga;
heitir það Hveravellir og stendur við Yztahverinn. Er það hitað
upp með gufu úr hverunum, sem leidd er inn í húsið í stein-
steyptu ræsi.