Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1928, Síða 75
75
bænum að austan eru tættur, er heita Sel (464) og á þar að hafa
verið sel frá Grenjaðarstöðum, einhvern tíma. Skammt þar frá er Sel-
höfði (465) og Selgil (466). Rétt þar utan-við er djúpt gil og malar-
bingir neðar; er það nefnt Skriða (467). Suður með ánni að austan,
suður frá Selinu, eru þessi örnefni: Yzt Halldórshvammur (468); þá
Baunahvammur (469), svo lítill, en niðurgrafinn, lækur, sem heitir
Vondilœkur (470). Þá er Vörðumelur (471). Og suður frá honum eru
margir lækir, er nefnast Skjóllœkir (472), og Skjóllœkjarmelur (473)
þar hjá.
Upp-af Langavatninu syðst, á merkjum Langavatns og Geita-
fells, er hár melhryggur, sem heitir Járnhryggur (474); er mjög ein-
kennilegt grjót á þeim mel, bláleitt á litinn. Er að sjálfsögðu eitthvað.
af járni í því, en það hefir ekki verið rannsakað.
XIV. Örnefni á heiðunum
austan við Reykjahverfið eru þessi þau helztu: Geldingadalur (475).
Hann liggur norðaustur heiðina upp frá Heiðarbót og er neðra.
dalsmynnið nokkuð ofan-við girðinguna. Eftir honum liggur vegur-
inn norður yfir Reykjaheiði; er hann á að gizka 2 kílómetrar á
lengd. Þegar kemur austur úr dalnum beygir vegurinn til suðurs
og er þá slétt mólendi að austan, en að vestan brött brekka er
nefnist Bjarnaöxl (476). Síðan beygir vegurinn aftur til austurs
og er þar hvammur all-stór, er nefnist Árnahvammur (477). Varð-
þar úti Árni, sonur Gísla í Skörðum, í galdrahríð, er talið var að síra
Vigfús Björnsson í Garði hefði gjört að honum, sem frá er sagt í'
Þjóðsögunum. Austan-við hvamminn er Höfuðreiðamúli (478), en
beint vestur af honum eru Höfuðreiðar (479). Þar hefir áður verið'
mikill vegur og fjölfarinn, en nú er landið uppblásið og grýtt; sér
þó sumstaðar fyrir mörgum götuslóðum samhliða. Töluvert mikið
styttra er að fara Höfuðreiðarnar en Geldingadalinn, og er það vana-
lega farið á haustin með fé norðan-af réttunum. — Austan-við Höfuð-
reiðamúlann eru Hellurnar (480); þar er all-vandratað yfir, því þar
eru víða sprungur og glufur í helluhraunið. — Austan-við Hellurnar
er Sœluhúsmúlinn (481); þar eru tættur af sæluhúsi. Norðan-til við
Sæluhúsmúlan er Jóhannsgil (482) og er það stundum farið af gang-
andi raönnum. Skammt utan- og vestan-við það er Skarðasel (483).
Þar var áður sel frá Skörðum í Reykjahverfi. Stutt frá því er djúp
tjörn, sem Nykurtjörn (484) heitir. Þetta er í Grísatungunum (485)
og eru þær rétt neðan undir Grisatungufjöllum (486); þar neðan
undir liggur vegur niður á Húsavík frá Sæluhúsmúla. — Nokkuð út
með fjöllunum er Höskuldsvatn, sem fyr er nefnt; með fram því eru.