Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1928, Page 85
85
Ofan úr fjallinu að norðan kemur Rauðufossakuísl, smákvisl, sem
fellur í Dalakvísl og heitir Rauðufossakvísl úr því. Við norðurenda
fjallsins skríður hún ofan af mjög háum, rauðum stalli. Hefir fjallið,
kvíslin og svæðið þar umhverfis, sem kallað er Rauðufossar, dregið
nafn af berginu undir fossinum. Norður-af Rauðufossum tekur við
hæðarbrún, sem liggur fyrst til norðurs og svo til vesturs með mörg-
um giljum, sem heita Krókagil, en brúnin Krókagiljabrún. — Nyrðra
eldgosið frá 1913 náði suður í þessa brún. — Nokkuð suður á þessu
hálendi er Krakatindur; vestur- og norður-af honum eru eldstöðv-
arnar frá 1878 og hraunið úr þeim, sem til þessa hefir verið kallað
Nýjahraun, nær norður að vegi. í útsuður af Krakatindi og i land-
suður af Heklu er smáfell, sem Guðm. Björnson landiæknir nefndi
1913 Mundafell, — áður nafnlaust; en það ár kom eldur upp í
landnorðurhorni þess og spjó dálítilli hraunbreiðu þar norður-af.
— Norður-af Heklu gengur all-langur ölduhryggur. Hæsta aldan á
honum, — nærri nyrzt — heitir Hestalda — líkist hestbaki að ofan —.
Vestan-undir henni er rauð eldborg, sem heitir Rauðaskál. Vestur-af
henni er mosavaxin kriki með gömlum gígum, sem heitir Skjólkuiar;
þar norður-af er Skjólkuíahraun. Vestan-við krikann er Hringlanda-
hraun. Það nær ofan frá Heklu og langt niður fyrir Skjólkvíar. Fyrir
neðan hraunið er langur fjallrani frá landsuðri til útsuðurs, sem heitir
Bjallar, en aðgreindir í Norður- og Suður-Bjalla af skarði sunnan
vert í þeim. Norður-af Norður-Bjöllum er Sauðafell; sunnan-undir því
er Sauðafellsuatn1). Vestan-við vatnið byrjar Ófœrugil; það liggur í
Rangá ytri. Upptök þess eru að nokkru leyti í Sauðafelli; þau eru
nefnd Sauðafellsbotnar. Sunnan-við Ófærugil og vestan-við Bjalla
tekur við Næfurholtsland. Ytri-Rangá á upptök norður-af Sauðafelli;
skiftast þau i tvennt; þau, sem nær eru Sauðafelli, eru nefnd Suður-
Botnar, en Rangárbotnar þau nyrðri. Vegurinn liggur niður tunguna
á milli þeirra og yfir norðurkvíslina. Brekkur með fram Rangá að
vestan og fyrir neðan vaðið heita Fossabrekkur.
Vestan-við Jökulgilskvísl og fyrir norðan veginn er lítið fjall, sem
heitir Norður-Námur; sunnan-við hann, á milli hans og kvíslarinnar,
er Norður-Námshraun og norðan-við það, við Tungnaá, er Norður-
Námsuer. Nokkru norðar með Tungnaá er Blautauer, og enn norðar,
þar sem áin beygir til vesturs, heitir Suarti-Krókur. Norður-af Norður-
Nám er nafnlaus alda, en norðarlega í henni er sýnilega gamall gíg-
ur, mjög djúpur; í honum er pollur eða smá-stöðuvatn, dökkgrænt og
skuggalegt; það hefir verið nefnt Ljóti-Pollur. Sú trú hefir verið til
1) Einnig hefi ég heyrt vatnið nefnt Grænavatn, en það nafn mun nú fátítt.