Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1954, Blaðsíða 37
41
sem bjuggu á nærliggjandi jörðum, og svo haldið því, er þeir endur-
byggðust. Á bernskuárum mínum á Skatastöðum voru t. d. Skugga-
björg í daglegu tali venjulegast nefnd Kot, að fara út á Kot og þess
háttar.
Skarðsárannáll greinir svo frá 1612:
„Jarðfellis ógangur í Austurdölum í Skagafirði, eyddust nær 2
bæir, fórst með af peningum, hlupu fram yfrið miklir skógar, rak af
þeim viði ofan í Hólm og víðar um Skagafjörð, því að Héraðsvötn
stemmdi upp“. Miklar rigningar gengu fyrir Jónsmessu um sumarið.
Gamlar austdælskar sagnir herma, að framhrun þetta hafi orðið
í fjallinu á móti Skatastöðum, þar sem heita Brennigilshólar, og hafi
þeir þá myndazt að einhverju leyti. Og víst má ætla, að þeir séu á
þann veg til orðnir á sínum tíma. Á einum stað í hólunum vottar fyrir
gömlum húsatóftum á grasbala nokkrum og girðingu þar umhverfis.
Átti þar að hafa verið býli, sem hét Kolgrímustaðir, og annar þeirra
bæja, sem eyðilagðist við framhrunið. Getur Jarðabókin þessa býlis
og segir, að þar hafi ekki verið byggt um langan aldur. Hver hinn
bærinn var, sem í eyði átti að hafa farið, eru óljósari sagnir um. Sé
þetta rétt, þá væri það sönnun þess, að enn hafa leynzt smábýli í
Austurdal, í upphafi 17. aldar, í landi hinna stærri jarða, en enginn
efi getur verið á því, að hólarnir hafa tilheyrt Miðhúsum.
Þarna segir samtímaheimild frá og skráð í sama héraðinu, svo að
ekki þarf að efa, að atburður þessi hefir átt sér stað. En hitt væri
hugsanlegt, að orðið ,,Austurdalir“ hefði ekki verið notað þarna sem
eiginheiti, heldur væri þar aðeins átt við dali eða dal, sem lægi í aust-
ur frá héraðinu, einn af austurdölum Skagafjarðar. Raunverulega
væri það engin málvilla. Væri því þann veg háttað, þá hefði fram-
hrun þetta getað orðið í Norðurárdal, og Þorbrandsstaðir og Höku-
staðir verið jarðirnar, sem „eyddust nær“. Og fullt svo eðlilegt virðist
vera, að Héraðsvötn hefðu „stemmt upp“, ef hlaupið hefði komið úr
Norðurá, sem fellur þvert á þau, heldur en alla leið framan úr Austur-
dal. Annars má benda á það, að á tímabili sýnist Austurdalsheitið
hafa gripið yfir meira en dalinn sjálfan. 1 Jarðabókinni frá 1713 er
t. d. byggð sú, sem nú kallast Kjálki, nefnd „við Austurdali“.
Það eitt kynni að þykja mæla á móti þessu, að ekki líða nema 100
ár frá því að framhlaupið varð og þar til jarðatalið er gert, og þá eru
jarðirnar báðar byggðar, og Ytrikot enda 1664.x) Sýnist það helzt
til stuttur tími vera til að hin fornu nöfn hefðu aflagzt, enda ekki ólík-
1) Ól. Davíðsson: Galdrar og galdramál, bls. 242.