Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1954, Page 48

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1954, Page 48
52 stunguna og endalykkjuna á seilabandinu og hert að. Síðan var hinn endi seilabandsins dreginn kviðmegin frá í gegnum trjónugatið, sem var kallað trumbugat, og því næst fest um röng í bátnum, þannig að hausinn lyftist úr sjó, en gott eftirlit varð að hafa með því, að seila- bandið nérist ekki sundur á borðstokknum, sérstaklega á róðri. Nú lá hákarlinn alveg hreyfingarlaus með kviðinn upp, en til þess að hann lægi á bakið, varð að seila hann eftir þessum reglum: I vinstra kjaftvik á bakborða, í hægra kjaftvik á stjórnborða, en þannig liggj- andi í sjónum veitti hann minni mótstöðu við róður en ella. Venjulega voru minnstu hákarlarnir skornir upp í bátinn, þar til hann þótti hæfilega hlaðinn undir seilarnar. Þegar kominn var nægur afli, voru færin dregin upp og síðan var farið að leysa upp, það var að draga línuna, og gengu allir að því verki. Það var oft erfitt verk, þegar hvasst var og þung alda. A landleiðinni voru segl notuð, ef hægt var, annars varð að róa, og var það mjög mikið erfiði og reyndi mjög á þrek og úthald manna, þegar um langan veg var að fara.

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.