Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1955, Síða 8
12
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
mikið og hrokkið og nær niður á herðar og sveigur um yfir ennið. Barbara
er í flegnum kjól, aðskornum í mitti, barmurinn hvelfdur, kjóllinn í miklum
fellingum neðan beltis. Hún grípur hægri hendi i kjólinn, og sést, að hann er
ermalangur. Skikkju slegna hefur hún yfir um axlir, og fellur hún með stór-
um, mjúkum fellingum á baki. í vinstri hendi heldur Barbara á einkunn
sinni, turninum, og hvílir hann við vinstri öxl og upp með vinstri vanga
hennar. Turninn er ferstrendur með undirstöðu neðst, síðan nokkru grennri
bol, þar sem tveir gluggar sjást, sinn á hvorri hlið, slær sér síðan aftur út
líkt og neðst, en upp úr hefur loks verið toppur, sem nú er að miklu leyti
brotinn af. Sýnilegt er, að einhvern tima hefur verið brugðið knífi á líknesk-
inu, sennilega til að kanna efnivið þess, eins og menn gera oft fyrir forvitni
sakir. — Lítið brot úr sams konar eða mjög líkum steini fannst einnig í tóft-
inni skammt frá Barbörulíkneskinu. Það er tiltelgt og mætti vel vera úr
neðri hluta myndarinnar, þótt ekki sé hægt að koma því í samhengi nú.
2. Brot af rafperlu, sem verið hefur hnöttótt, mælist mest 1 sm, sést til augans
á einum stað.
3. Leirkersbrot rauöleit. a. Brot úr keri, sem verið hefur þvergárótt utan,
5 mm þykkt, mælist mest 2,8 sm, glerungur bæði innan og utan á, mikið
hrím utan á. b. Brot úr brúnu keri með votti af upphleyptum böndum utan
á, 4 mm þykkt, mælist mest 3,7 sm, glerungur utan á, miklu harðara og þétt-
ara en a (liklega „steintau"). Tvær lausar flisar fylgja þessu broti. c. Brot
með glerungi innan á, en glerungslausu, ógáróttu ytra borði með sótlit, 7 mm
þykkt, mælist mest 3,6 sm. d. 18 smábrot og flísar úr rauðum, ekki harð-
brenndum leir eins og a og c; sums staðar vottar fyrir glerungi.
4. Látúnslauf tungumyndað, 3,1 sm á lengd, með þremur aflöngum götum til
festingar á undirlag, skrautlaust. Vandséð af hverju.
5. Krítarpípuleggur, 5 sm að lengd.
6. Þrjú skeifubrot, þar af tveir hælar, sem annar er brotinn um aftasta gat,
3,8 sm langur, hinn 4,6 sm. Á þriðja brotinu, sem er 7 sm langt, sést eitt gat;
öll brotin mjög bólgin af ryði.
7. Átta hestskónaglar eins og íslenzkir hestskónaglar hafa alltaf verið, hinn
lengsti 3,5 sm að lengd, flestir óheilir.
8. Níu venjulegir naglar, allir meira eða minna óheilir, hinn lengsti 6,8 sm,
beygðir að neðan, leggurinn ferstrendur, haus óreglulega kringlóttur eins
og allir hinir hausarnir.
9. Um 20 járnmolar, sem sumir kunna að vera úr skeifum, aðrir úr nöglum,
en a. m. k. tveir virðast ótvírætt vera gjallmolar.
Ekki virðist ástæða til að efa, að Barbörulíkneskið sé frá kaþólsk-
um tíma, en ekki treysti ég mér til að tímasetja það nánar. Líkneskið
sýnir þá, að húsrúst þessi mun vera síðan fyrir siðaskipti, því að
óhugsandi virðist með öllu, að það hafi borizt í rústina á seinni öld-
um. Þá bendir og líkneskið eindregið til þess, að nafn rústarinnar
segi rétt til um upphaflega notkun hússins. Það hefur að líkindum
verið kapella, þar sem vegfarendur gátu staðnæmzt til að gera bæn