Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1955, Blaðsíða 37
MANNAMYNDADEILD ÞJÓÐMINJASAFNSINS
41
hvarfli að manni, þar sem hann líkir Arngrími við feitan forustu-
sauð, sem fullur sjálfsánægju státar með yfirburði sína hjá hjörðinni:
„Eins ok forinn feitur
fénu mörgu hjá
stendur strembileitur
stórri þúfu á“ o. s. frv.
Myndin mótmælir því heldur ekki, að Hallgrímur, þó ungur væri,
hafi með næmu auga kímniskáldsins (sem e. t. v. hefur verið skerpt
af pínulítilli óvild) getað greint það broslega í fasi og framkomu
frænda síns og ýkt það hæfilega til að hitta í mark það, er hann vildi.
Þannig getum vér skoðað hverja myndina af annarri og jafnan
orðið nokkurs vísari — jafnvel í mynd meistara Jóns þekkjum vér
hinn stórbrotna snilling, þrátt fyrir að hún er gerð eftir nú óþekktri
og glataðri frummynd. — En vér skulum nú sleppa þessu, aðeins
staldra við eitt augnablik hjá myrid Jörundar hundadagakóngs af
sjálfúm sér. Þó hún sé hvorki íslenzk né af íslenzkum manni, þá
kemur hún samt íslaridssögunni við, og hún er áreiðanlega ekki ein-
ungis bezta skopmyndin, sem vér eigum í safninu, heldur einnig ein
bezta mannlýsingin, kímnin er svo ósvikin og eins sjálfsgagnrýriin,
þó hún e. t. v. sé blönduð vissri óafvitandi sjálfsmeðaumkun, en á
bak við þetta allt og á bak við loddaragervið eygir maður hinn glað-
lynda, áhyggjulausa sjómann, reiðubúinn til að setja upp seglið og
stýra inn í ný ævintýri, en snúa öllum mistökum og ágjöfum lífsins
upp í glens og gaman. -
Þó að dæmi þau, sem nefnd hafa verið, séu öll af gömlum mynd-
um, og þótt því verði ekki neitað, að sagan gefi þeim öllum vissan
bakgrunn, sem margar aðrar myndir vantar, er samt óhætt að full-
yrða, að um hverja einustu mannsmynd megi segja eitthvað svipað,
hún ber með sér sína sögu, hefur sinn skerf að leggja af mörkum
til fróðleiks og aukinnar mannþekkingar og þar með líka þekkingar
á þjóðinni allri.
IV.
Þá ber að nefna þær hliðar í starfrækslu mannamyndadeildar
Þjóðminjasafnsins, sem fyrst og fremst vita að öllum almenningi,
og þá praktísku þýðingu, sem hún hefur haft og hefur fyrir fólk svo
að segja daglega.
Eins og allir vita, kemur árlega út f jöldi bóka og rita til almennrar