Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1955, Síða 43
EYÐIBÝLI 1 HELGAFELLSSVEIT
47
um forna byggð, enda mun hún hafa lagzt niður skömmu eftir dauða
Þórólfs. Upp úr bænum hefur síðar verið byggður stekkur. Og lítill
lækur hefur hjálpað til að afmá leifar bæjarins. Hvammur hefur átt
allan Þórsáraal austan Þórsár og þar með Krákunesskóg.
Þótt sýnilegar minjar eftir jarðvist Þórólfs bægifóts séu engar
til, nema haugar hans tveir, annar á Þórsárdal, en hinn á Bægifóts-
höfða við Álftafjörð, verður hans lengi minnzt með þjóð sinni sem
hins ferlegasta draugs að lífinu loknu, sem deyddi fólk og eyddi
byggð.
4. Spágilsstaðir í Þórsárdal.
Eyrbyggja saga greinir svo, að Spágils hafi búið á Spágilsstöðum
í Þórsárdal. Engin munnmæli þekkjast um það, hvar í Þórsárdal Spá-
gilsstaðir hafi staðið. Sigurður Vigfússon fornfræðingur taldi lík-
iegt, að bærinn hefði staðið vestan við Þórsá, litlu sunnar en gegnt
Hvammi. Engin merki sjást þar um nein mannvirki. Þar virðist vera
aðeins um eðlilega þúfnamyndun að ræða. Vestan Þórsár og nokkru
norðar en gegnt Hvammi mátti til skamms tíma sjá, að býli hefði
staðið. Ekki varð húsaskipun greind á yfirborðinu, en aðeins upp-
hækkaðar rústir. Ein rústin var stærst og þrjár til f jórar minni rústir
á víð og dreif út frá aðalrústinni. Ég tel vafalaust, að hér sé um
mjög fornt býli að ræða, en nafn þess kann nú enginn að greina. Nú
hafa leifar þessa býlis verið jafnaðar við jörðu með jarðýtu, og er
þar nú komið nýtt tún. Þar sem hvergi annars staðar sést votta fyrir
fornum bæjarrústum í Þórsárdal, tel ég líkur fyrir, að hér hafi Spá-
gilsstaðir staðið, svo miklar, að rétt sé að láta það nafn fylgja þess-
um stað, þar til annað kann að reynast réttara.
5. Illugatraðir.
Neðan við túnið á Hrísum stóð á löngu liðinni tíð grasbýlið ílluga-
traðir. Eftir miðja síðustu öld var byggður kálgarður upp úr bæjar-
rústunum. Hann hefur nú verið jafnaður við jörðu og breytt í tún,
ásamt stóru móastykki, sem hét Traðir og var áður hið forna tún
Illugatraða. Ekkert er nú til, sem minnir á þetta forna býli, nema í
fyrsta lagi nafnið Traðir, sem er nú að hverfa í gleymsku, og í öðru
lagi lítill lækur, sem rennur vestur með Hrísamelum og fellur í Svelgsá