Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1955, Blaðsíða 62
GÍSLI GESTSSON:
TÖFTIR í SNJÖÖLDUFJALLGARÐI
Tungná heitir ein af stórám þeim, sem úr Vatnajökli koma. Efstu
upptök hennar eru þar, sem heita Innri-Tungnárbotnar hjá Kerling-
um vestan í Vatnajökli, þaðan rennur allmikil á suður með jökli aust-
an undir Bláfjöllum í Fremri-Tungnárbotnum, en það er um 15 km
sunnar við jökulinn. Frá Fremri-Tungnárbotnum rennur áin svo að
segja þráðbein til suðvesturs, unz hún beygir hjá Kýlingum fyrst til
norðurs ogsíðan hlykkjótta leið norðvestur í Þjórsá. Á þeirri leið fell-
ur Kaldakvísl í hana, allstór jökulá, sem kemur úr Vonarskarði.
Frá Fremri-Tungnárbotnum og vestur undir Stóra-Kýling er óslit-
inn f jallgarður sunnan Tungnár, sem heitir Tungnárf jöll, en norðan
ár eru fjöllin skörðóttari, heita austast Ljósufjöll, þá Svartikambur,
Snjóölduf jallgarður, hann er um 18 km langur, Snjóalda, mikið og hátt
fjall, og vestur á alboganum gegnt Kýlingum Austur-Bjallar. Á þess-
um 50 km lækkar áin aðeins um 100 m, og frá Svartakambi að Austur-
Bjöllum, sem er 80 km, er halli árinnar aðeins 30 m. Rennur áin því
á þessum slóðum mjög lygn á blautum sandeyrum.
Tungná er mikið vatnsfall, þar sem hún rennur frá jöklinum. Eru
fá og heldur vond vöð á henni, og eftir að Kaldakvísl er komin í hana,
er hún orðin ein af mestu ám landsins, er t. d. snöggt um meiri en Hér-
aðsvötn eða Skjálfandafljót.
Helzta vað á Tungná í seinni tíð er Bjallavað hjá Vestur-Bjöllum.
Má það heita ágætt vað á jafnmikilli á; er venjulega neðan á síðu, og
er tæpra 15 mín. reið yfir ána. Rétt ofan við vaðið hafa verið settir
tveir bátar við ána, og er þar hinn bezti ferjustaður. Svo er að sjá, að
þetta vað hafi verið ókunnugt í gamla daga. Árni Magnússon segir
(í AM 213, 800, sbr. Árb. Fornleifafél. 1940, bls. 78): „Þeir af Landi
í Rangárvallasýsdu sækja og til Fiskivatna, upp með Þjórsá austan
fram, til þess Túná kemur í hana, síðan yfir Túná hjá Hestabrekku,
og svo upp með henni allri norðan fram í landnorður eða austur; skal
vera álíka langt af Landi og úr Skaftártungu".