Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1955, Qupperneq 100
104
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
8. Peasant Art, fig. 43.
1. 58093. Rúmfjöl úr furu. L. 82.7, br. 22, þ. um 1.3.
2. Óskemmd. Máluð blágræn á framhlið, kantarnir rauðbrúnir,
skrautverkið grænt og rauðbrúnt. Málningin mjög slitin. 75.1.ab.
3. Á bakhlið eru krotaðir tveir hringar, sem skera hvor annan,
og nokkrar óglöggar bogalínur. Á framhlið eru báðir kantar strik-
heflaðir, og að ofan eru tvær línur með innskornum gotneskum
prentstöfum og ártali (stafirnir rauðir). Undir þeim eru skorin lá-
rétt „þankastrik“ (græn). Að neðan er skrautverk með blöðum og
teinungum, innskorið („öfugt upphleypt"). í miðju er jurtapottur
og út frá honum ganga bylgjuteinungar til beggja hliða (rauðir) ;
í miðju er uppréttur blaðaskúfur (grænn). Niðurröðun alveg sam-
hverf. Stönglarnir skornir á ská niður frá báðum hliðum, svo að
skoran verður dýpst í miðju; breidd allt að 8-9 mm. Hliðargrein-
arnar eru mjórri, með blaðskúfum, blaðfliparnir frammjóir, sumir
breikkaðir með ávölu „þykkildi“. — Mjög vandað og nákvæmt verk.
4. Ártal: 1857.
5. Áletrun: ARNFINNUR ARNFINNSSON.
GUDRUN IONSDOTTIR 1857.
6. L: Keypt fyrir meðalgöngu Sigurðar Vigfússonar 1888,
Reykjavík.
1. 59218. Rúmfjöl úr furu. L. 101, br. 15.8, þ. um 1.
2. Brotið af neðra kanti við annan endann, nokkuð sprungin.
Hefur sennilega verið máluð. Nokkrar hvítar málningarslettur hér
og þar í hrufunum. 75.B.O.
3. Á bakhliðinni eru krotaðir þrír (skakkir) hringar. Framhlið-
in strikhefluð meðfram köntunum. Annars útskorin með upphleyptu
teinungaskrautverki. Teinungarnir samhverfir til beggja hliða út
frá miðjunni. Greinar mynda hjarta á miðjunni. Annars eru fjórir
aðalvafningar hvorum megin. Stönglarnir eru flatir að ofan, allt að
1.5 sm breiðir, með innri útlínum og skástrikuðum þverböndum sums
staðar, þar sem greinar skiljast frá. Greinarnar enda á vafningum,
sums staðar með „hnakkablaði“. Sums staðar liggja lykkjumynduð
blöð meðfram stönglunum. í vafningnum lengst til vinstri stendur
fugl. Inni í hjartamyndinni (í miðju) eru latneskir upphafsstafir.
upphleyptir. — Ekki sérlega vandað verk.
4. Ártal ekkert.
G
5. Áletrun: T D