Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1955, Side 113
117
ISLENZKUR TRÉSKURÐUR í SÖFNUM Á NORÐURLÖNDUM
6. L: Seljandi frú S. E. Magnússon 1892. Carabridge, England.
1. 72092. Rúmfjöl úr mahogny? (Lappkatalogen: Úr eik. (En
það er varla rétt.)) L. 120, br. 15, þ. 1.2.
2. Sprungin og brotin þvert yfir dálítið til hægri við miðjuna,
viðgerð með járnspöngum og nöglum, nolckuð stór flís af við annan
endann. Ómáluð. 75.1.d.
3. Strikhefluð meðfram köntunum að ofan og neðan á framhlið.
í miðju hringur innskorinn, innan hans er kílskurðarbekkur allt í
kring og skipaskurðarstjarna (sexblaðarós). í hvern hinna þrí-
hyrndu reita, sem verða milli blaða hennar, er innskorinn þríhyrn-
ingur með innsveigðum hliðum og dýpkuðum hornum. Yinstra meg-
in við hringinn eru þrír stórir innskornir latneskir skrifstafir með
djarflega innskornum línum með grynnri útlínum til beggja hliða.
Hver punktur milli stafanna er gerður með tveimur kílstungum,
hvorri gegn annarri. Til hægri eru sjö líkir stafir, sem sýna ártal-
ið. —- Mjög haglegt verk.
4. Ártal: MDCCCLI.
5. Áletrun. Fangamark: K. I. D.
6. L: Seljandi frú S. E. Magnússon 1892. Cambridge, England.
1. 72093. Rúmfjöl úr furu. L. 112, br. 21.5, þ. um 1.
2. Tvær stórar sprungur og nokkrar minni. Járnspengur á bak-
hliðinni halda fjölinn.i saman. Ómáluð. 75.B.p.
3. Útskurður á framhliðinni; strikhefluð meðfram köntunum að
ofan og neðan. Svo er krákustígsbekkur sem umgerð. Grunnur flat-
arins þar fyrir innan er lækkaður um 2-3 mm. Hér eru upphleyptir
stafir og jurtaskrautverk; þrír stórir latneskir skrifstafir á hvora
hlið skrautverksins. Stafirnir eru ávalir að ofan. Rúðustrikun er á
hinum kringlumynduðu endum allra vafninganna. í miðju er stór,
uppréttstandandi jurt með miklu blaðverki. Miðstöngullinn endar í
útsprungnu blómi með ávölum krónublöðum yzt og margarma
„stjörnu" innan í og rúðustrikaðri „kringlu“ í miðjunni. Samhverf-
ar greinar ganga út hvor til sinnar hliðar, á ská upp frá grunnin-
um; þær hafa einnig útsprungin blóm, án „stjörnu“. Blaðverkið hyl-
ur stönglana að mestu leyti. Blöðin eru stór og sveigð og frammjó
með ýmiss konar skurði, mest fjaðurstrengjum; sum hafa skipaskurð
með rúðustrikaðri „kringlu" í miðju. Samhverfið ekki fullkomið. —
Blaðaskrautið er nokkuð frumstætt. Stafirnir mjög vandvirknis-
legir.
4. Ártal ekkert.