Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1955, Qupperneq 126
130
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
þess sé þar og fylli þannig það safn á sínu sérsviði, fornleifafræð-
inni.
Loks er þess að geta, að smíðaðar voru hillur í geymslu undir ljós-
myndaplötusöfn, sem gefin hafa verið á árinu, en þó á enn eftir að
búa margt í haginn í geymslum safnsins.
Kostnaður við uppsetningu og innréttingu varð samtals krónur
128.062.87.
Sýninqar og aðsókn. Eins og að undanförnu hefur safnið verið
opið almenningi 9 stundir á viku. Fjöldi safngesta á árinu var 19.411,
á móti 18.965 á árinu 1954. Af sérsýningum er ekki annað að nefna
á safnsins vegum en Skálholtssýninguna, sem hófst fyrir áramót og
stóð nokkuð fram á árið 1955, og rétt íyrir jólin var svo opnuð sýn-
ing á austurlenzkum vefnaði og útsaumi, sem Listiðnaðarsafnið í
Ósló gaf Þjóðminjasafninu, fyrir framtak og velvild forstjóra þess,
dr. Thor B. Kiellands.
Nokkrir aðrir aðilar en safnið fengu að halda hér sýningar. Bar-
bara Árnason og Ásdís Thoroddsen sýndu dúka og gullsmíði, Sam-
band íslenzkra samvinnufélaga hafði bókasýningu, Nína Sæmunds-
son sýndi höggmyndir og málverk, Sigrún Jónsdóttir sýndi hann-
yrðir margs konar, Handíðaskólinn sýndi höggmyndir eftir amerísk-
an mann að nafni Rhoden, og flutti listamaðurinn sjálfur fyrirlestur
með, Örlygur Sigurðsson sýndi málverk. Sérsýningarsalur safnsins
(bogasalur) er þegar orðinn vinsæll staður fyrir smærri sýningar,
og má gera ráð fyrir mikilli eftirspurn eftir honum í framtíðinni.
I samráði við ráðuneytið hefur hann verið leigður fyrir kr. 100.00
á dag.
Safnauki. Á árinu voru færðar 80 færslur nýfenginna safngripa,
en í sumum þeirra eru margir gripir. Eins og áður eru langflestir
þessara gripa gjafir til safnsins og sumar ágætar. Af merkum ís-
lenzkum gripum má nefna altarisdúk frá Söndum í Dýrafirði, gef-
andi frú Martha Spreckelsen, Randers, mynztrasafn Ingu Lárus-
dóttur, gefendur erfingjar hennar, kúpta nælu frá fornöld, gefandi
Þór Magnússon, Reykjavík, rennismiðju (kerlingarsmiðju), gefandi
Jóhann Þorsteinsson, Hnappavöllum, fálkafána frá Raufarhöfn, gef-
andi Einar Jónsson, Raufarhöfn, útskorinn skáp eftir Bólu-Hjálmar,
gefandi Guðrún Blöndal, Reykjavík, og er þó aðeins hið helzta talið.
Af minjagripum íslenzkra manna skal nefna víkingaskip Bergs skip-
stjóra Jónssonar í Hafnarfirði, útskorið af Ríkarði Jónssyni, gefið
af börnum Bergs, gullúr Eiríks meistara Magnússonar, gefið af dr.