Lögrétta - 01.07.1932, Side 18
323
LÖGRJETTA
324
neitt spaug og hjelt áfram mjög alvarlega).
Hann hefur sem sje alls ekki skrifað það,
sem flestir halda að hann hafi skrifað. Þar
að auki höfðu alvarlegir glæpir aukist
hroðalega í Ítalíu. Þegar í Englandi voru
drýgðir hundrað glæpir, voru þeir fimm
hundruð hjá okkur.
Ludwig: Þjer hafið þá ekki farið eftir
siðferðilegum eða trúarlegum rökum.
M u s s o 1 i n i (undrandi): Trúarlegum ?
Trúin getur ekki viðurkennt dauðarefsingu.
Ludwig: Það fer eftir því hvort testa-
mentið er. Gamla testamentið segir: auga
fyrir auga og tönn fyrir tönn. Og Masaryk,
sem jeg veit að þjer metið sem heimspeki-
lega djúphygginn mann, er fylgjandi
dauðarefsingu af siðferðilegum ástæðum.
Hann hefur einu sinni sagt, að dauðarefs-
ing minki ekki tölu slæmra glæpa, svo að
hann geti ekki öðlast neina vernd fyrir
þjóðfjelagið á þann hátt, heldur aðeins
endurgjald fyrir blóðsúthellinguna.
M u s s o 1 i n i: Þá komum við eins fram
af ólíkum hvötum. Jeg hef einungis farið
eftir þjóðfjelagslegri hugsun. Var það ekki
hinn heilagi Tómas, sem sagði, að við ætt-
um að höggva af þann handlegg, sem kol-
brandur væri í, til þess að allur líkaminn
gæti batnað. Jeg fer samt ákaflega varlega.
Dauðarefsingu er de facto ekki beitt nema
um alvarlegan og játaðan glæp sje að ræða.
Ef einhver ögn er af efa, þá náða jeg.
L u d \v i g: Það heyrir til kapitulanum
um kosti einræðisins. Langar yður ekki til
þess að snúa yður að Napóleon?
TAussolíní og 'Naþoleon
M u s s o 1 i n i: Jú, blessaður haldið þjer
áfram.
Ludwig: Jeg er ekki alveg viss um
það, hvort þjer álítið hann fyrirmynd, eða
víti til varnaðar.
Mussolini (hallar sjer alveg aftur í
stólinn og segir lágri rödd): Víti til varn-
aðar. Jeg hef aldrei álitið Napóleon fyrir-
mynd. Það er alls ekki hægt að líkja mjev
við hann. Athafnir hans voru gerólíkar mín-
um athöfnum. Hann lauk við byltingu, jeg
byrjaði byltingu. Æfi hans hefur sýnt mjer
þá ókosti, sem mjög erfitt er að sneiða hjá.
(Mussolini telur á fingrum sjer). Frænd-
drægni, — deilur við páfann — skort á
skynbragði á atvinnu- og fjármálum. Hann
sá það, að vextimir hækkuðu eftir sigra
hans. Það var allt og sumt. Og svo (hann
hallaði sjer fram í lampaljósið) og svo hef
jeg lært eitt stórkostlegt af honum. Hann
liefur fyrir fram svift mig öllum gyllivon-
um, sem jeg hefði getað gert mjer um trygð
mannanna. Á því sviði kemur mjer ekkert
á óvart.
L u d w i g: Hver var orsökin að falli
hans? Prófessorarnir segja að það hafi
verið Englandi að kenna. (Jeg spurði eins
cg jeg vissi þetta ekki).
Mussolini: Það er þvættingur. Hann
fórst vegna klofningsins í sínu eigin eðli.
Og eiginlega er sú orsökin til falls allra
manna. Þegar hann bar kórónuna, lagði
grundvöll konungsættar, var fyrsti konsúll
— já, þá var hann mikill. Hnignunin hófst
með keisaradæminu. Það var rjett hjá
Beethoven að svifta hann aftur tileinkun-
inni á Eroica. Kórónan neyddi hann til þess,
að leggja sífelt í nýjar styrjaldir. Nei, sjá-
ið þjer Cromwell: mikil hugsjón, vald ríkis-
ins, og samt engin styrjöld.
L u d w i g: Er þá til alríkisstefna án al-
ríkis (Imperialismus án Imperium).
Æfíkisstefna og styrjaldír
M u s s o 1 i n i: Það er til sægur af mis-
munandi alríkisstefnum. Keisaradæmi þarf
ekki alríkisstefnu, hún er því öllu fremur
hættuleg. Því víðáttumeira, sem það verður,
því meira eyðist lífrænn þróttur þess. Samt
sem áður er tilhneigingin til alríkisstefnu
eitt af frumlægustu öflum manneðlisins. al-
veg eins og viljinn til valds. Nú höfuni við
alveldisstefnu dollarsins, á öðrum tímum er
til trúarleg eða listræn alveldisstefna. Hún
er í öllum þessum myndum vottur um
mannlegan lífsþrótt. Meðan maður lifir, er
n;aður alveldissinni og hættir því ekki fyr
en maður er dáinn.
(Það var heilmikill Napóleonssvipur á
Mussolini meðan hann sagði þetta. Hann
liktist beinlínis mynd Lefévres frá 1815.
En hann varð blíðari á svipinn og breytti
um tón, er hann hjelt áfram):