Óðinn - 01.07.1920, Síða 39

Óðinn - 01.07.1920, Síða 39
ÓÐINN 8? En þó munu lilraunir hans við veiðivötnin taldar merkilegri. Náttúruþekkingin hjer á landi er skamt á veg komin, enda gætu menn margt lært af þess- um ómentaða bónda. Við Svartárkot er dálítið veiðivatn, en í því var Ijelegur smásilungur þegar Einar fluttist þangað. Haustið 1883 gerði hann fyrstu tilraun til að flylja frjógvuð silungshrogn úr Mývatni í Svartárvatn, og mun það vera í fyrsta sinni, sem frjógvuð silungshrogn eru flutt á milli vatna á íslandi. Það er alveg ómenlaður maður, sem gerir slíkt, án þess að hafa nokkuð heyrt eða lesið um möguleika og aðferðir til þess. Þessu starfi hjelt hann áfram, þó í smáum stíl væri, flest haustin, sem hann var í Svartárkoti, eftir þelta. Það hafði líka mikinn sýnilegan árangur, silungnum fjölgaði í Svartárvatni; einnig batnaði hann og þroskaðist við kynbæturnar. Eins og kunnugt er mun Mývatnssilungur talinn besti sil- ungur sem afiast í vötnum á íslandi. — Nokkrum árum síðar voru að tilhlutun Einars flutt bleikju- hrogn úr Mývatni í Kringluvatn, sem einnig hefur bætt silunginn þar mjög til liagsbóta. Einstöku menn í IJingeyjarsýIu hafa farið að dæmi Einars í þessu efni, og orðið að gagni. Á siðari árum hefur töluvert verið unnið að silungsklaki í Mý- vatni, er virðist hafa fjölgað silungi og aukið veiðina þar. Einar og Guðrún fluttu frá Svartárkoti að höf- uðbólinu Reykjahlíð vorið 1895, og bjuggu þar síðan. En 1911 fengu þau jörðina alla börnum sínum til ábúðar, og hafa nú aðsetur hjá einu þeirra, Sigurði. Vinnur Einar enn að silungsveiði með ólrúlegri elju, en Guðrún annast barnahörnin, og sleppur þeim aldrei verk úr hendi, þó þau gerist nú öldruð. — Þau eignuðust 14 börn, 5 dóu í æsku, en 9 eru á lífl: Jón, lllugi, Guðrún og Sigurður, búa öll í Reykjahlið, ísfeld er bóndi á Kálfaströnd, Þuríður húsfreyja í Vogum, Jónas bóndi í Álftagerði, en Sigríður og Marja ógiftar heima í Reykjahlíð. Gömlu hjónin eru enn við góða heilsu og fylgj- ast af áhuga með gengi barna sinna og sambúð, heimilisstörfunum og þvi er við ber í fjelagslífinu innan sveitar og utan. Enda eiga þau skilið að njóta vel hins fallega sólseturs, undir Hlíðinni fögru, á æfikvöldinu sínu. Það munu börnin þeirra annast. Með þeim hugheilu óskum kvöddu vinir og vandamenn gömlu brúðhjónin gullbrúð- kaupskvöldið síðasta sumardag 1918. K. Baldvin Sigurðsson. Guðný Jónsdóttir. Lteiðrjetting1. fau leiðu misgrip urðu í síðasta liefti »Óðins«, að með mynd Raldvins Sigurðssonar i Garði var sett mynd af Guðrúnu Jónsdóttur konu Ein- ars Friðrikssonar i Reykjalilíð, en myndir þeirra Reykjahlíðarhjónanna átti þá einnig að koma í heftinu, en urðu eflir og koma nú. Til leiðrjett- ingar er hjer nú aftur prenluð mynd Baldvins í Garði og með henni mynd Guðnýjar Jónsdóttur konu hans, sem átti að vera í síðasta hefti. — í greininni um Garðshjónin var einnig villa, þar sem sagt var frá sonum Garðshjónanna. Sú frá- sögn átli að vera svona: 1. Jón, trjesmiður í Húsavík. Á Aðalbjörgu Benediktsdóttur frá Auðnum. 2. Sigurður, bóndi í Garði. Kvæntur Bergljótu Benediksdóttur frá Auðn- um. 3. Benedikt, sömuleiðis bóndi í Garði. Kvænt- ur Matthildi Halldórsdóttur frá Kálfaströnd við Mývatn. 0 Páll Zóphóniasson skólastjóri. Páll Zóphóníasson er fæddur í Viðvík 18. nóv. 1886, sonur síra Zóphóníasar Halldórssonar presls og prófasts þar og konu hans Jóhönnu S. Jóns- dóltur, Pjeturssonar háyfirdómara. Hann stundaði nám á Hólum og síðan við danska lýðskóla, bún- aðarskóla og landbúnaðarháskóla Dana. Þaðan lauk liann prófi vorið 1909. Ferðaðist þá um Noreg um sumarið, en kom upp um haustið og varð þá kennari við Hvanneyrarskólann í stað Hjartar Snorrasonar. Síðan hefur hann kent við

x

Óðinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.