Óðinn - 01.07.1920, Page 43

Óðinn - 01.07.1920, Page 43
ÓÐINN 91 Thor E. Túlinius. Fyrir rúmum 15 úrum, í júlí 1905, íluUi »Óð- inn« mynd af Thor E. Túliníus, og er þar getið helstu æfiatriða hans fram til þess tíma. En alla tíð síðan hefur hann rekið óslitna starfsemi í verslun og viðskiftum hjer við land, annaðist m. Tlior E. Túliníus. a. strandferðir hjer um nokkur ár, — eða Thore- fjelagið, sem hann veitti þá forstöðu, — á skip- unum »Austra« og »Vestra«, sem smíðuð voru í þeim tilgangi. En eflir að hann Ijet af forstöðu Thorefjelagsins stofnaði hann stórt verslunarfjelag, »Hinar sameinuðu íslensku verslanir«, og runnu inn í það bæði eldri verslanir hans og svo allar verslanir »Gránufjelagsins«. Nú er hann fram- kvæmdastjóri þess fjelags, og rekur það verslun víða á Austfjörðum, svo sem Fáskrúðsfirði, Reyðar- firði, Eskifirði, Norðfirði, Seyðisfirði og Borgarfirði, og viða á Norðurlandi, svo sem á Akureyri og Oddeyri, Siglufirði, Ivolkuósi, Sauðárkróki og ef til vill víðar. Og nú fyrir skömmu hefur það keypt hina stóru, gömlu verslun Ásgeirs heitins Ásgeirssonar á ísafirði. Lýsir sjer jafnan hinn mesti dugnaður og áhugi í öllum athöfnum Túliníus- ar. Hann er og í miklu áliti, bæði hjer á landi og í Danmörku, og kom það fram í ummælum inargra danskra blaða nú í sumar, er hann varð sextugur, en það var 28. júlí. Var hann þá á leið liingað til lands á skipinu »ísland«, ásamt frú sinni og tveimur dætrum, og var afmælið haldið þar hátíðlegt og margar ræður fluttar, því fjöldi farþega var með skipinu. Rilstj. »Óðins«, sem var með í förinni, orti þá eftirfarandi kvæði til Túliuíusar: Við tölum ekkert um tímans flug, Túliníus. En við minnumst á dáð og dug, Túliníus, hjá dreng, sem erlendis ungur fór á eigin spýtur og varð þar stór Túliníus. Þú mundir æ þína móðurjörð, Túliníus. Og æskubólið við Eskifjörð, Túliníus. Úr rústum alt vildir reisa þú, og rækla Iandið og stækka bú, Túliníus. Og bráðum fleyin þín flutu’ um dröfn, Túliníus. Og íluttu vörurnar heim í höfn, Túliníus. Við skildum þig ekki alla tíð, þú áttir stundum við þjark og stríð, Túliníus. En nú er unnin mörg erfið þraut, Túliníus, og mörgum hugsjónum brotin braut, Túliníus. Þú segist nú vera sextugur, en sýnist vart meir en fertugur, Túliníus. Og hvar sem fley ber þig Fróns að strönd, Túliníus, þig biður velkomin vinar hönd, Túliníus. Menn bjóða velkominn víkinginn og virða drenglund og kjarkinn þinn, Túliníus. Og lifðu enn þá um langa tíð, Túliníus. Og enn sem fyrri við starf og stríð, Túliníus. Og færðu þjóð þinni gæða gnægð og græddu sjálfum þjer auð og frægð, Túliníus.

x

Óðinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.