Óðinn - 01.07.1920, Qupperneq 45

Óðinn - 01.07.1920, Qupperneq 45
ÓÐINN 93 og þar stóð ein harðasta hríðin í striðinu við Þjóðverja og hafa bæði Danir og Þjóðverjar reist þar minnismerki um hana. Útsýn þaðan af hæðunum er hin fegursta yfir land og sund. Nú voru þar saman komnar við hátíðahöldin um eða yfir 100 þúsundir manna. Sundið milli Alseynnar og meginlands er örmjótt þar við hæðirnar og brú yfir það, en yflr á Als, við sundið, er Sönderborg. Neðri myndin sýnir það, er konungur kom á skipi sínu »Dannebrog« til Sönderborg og talaði þaðan til mann- fjöldans, er stóð uppi á götunni við höfn- ina. Var þá einnig nýkomið þangað skip með ríkisþingmennina frá Khöfn. Veður var fagurt þennan dag og hátiðahaldið alt á Dybböl og í Sönderborg mjög tilkomu- mikið, margar ræður íluttar, og í milli þeirra söngur og hljóðfærasláttur, en um kvöldið skrautlýsing og flugeldar. Þriðja daginn fór konungur og fylgilið hans vestur um Jótland til Tönder, en aftur um kvöldið til Sönderborgar. Á ferðinni um Jótland var ráðaneytið alt með konungi, nema I. C. Christensen, sem var veikur, og auk þess margt manna, sem boðið var til þess af stjórninni. Viðtökurnar voru, eins og áður segir, alstaðar hinar hjartan- legustu. í hinum stærri bæjum, svo sem Haderslev, Aabenraa, Sönderborg og Tönder, var móttakan mjög hátíðleg. En úli um landið stóð fólkið einnig víða í löngum röðum meðfram vegunum og heilsaði konunginum og fylgd hans með fagnaðar- ópum. Barátta danskra Suður-Jóta fyrir viðhaldi þjóðernis síns og tungu hefur verið löng og oft erfið. En fögnuðurinn var líka mikill yfir uppfylling vonanna og sigrinum. Þó eru allmargir danskir menn enn eftir fyrir sunnan nýju takmarkalínuna og eins allmargir Þjóðverjar fyrir norðan hana. En hjá því varð að sjálfsögðu ekki komist. Hvergi varð vart nokkurrar óánægju frá hálfu hinna þýsku ibúa Suður-Jótlands í hyllingarför Kristjáns konungs um landið. Munu þeir, sem með voru í þessari för, aldrei gleyma henni. * Frederik V. Petersen deildarsijóri. Myndin hjer er af manni þeim, sem hafði yflrumsjón suður- jótsku hátíðahaldanna, Fr. V. Petersen, deildarstjóra í ríkisráða- neytinu. Var pað vandasamt verk, en vel af hendi leyst, og þakkaði Neergaard forsætisráðherra honum fyrir það í ræðu að kvöldi aðalhátíðardagsins. í þeirri ræði lýsti forsætisráð- herrann gleði sinni og ánægju yfir því, hve vel hátíðahöldin færu fram, og sjerstaklega hrósaði hann konungi mikið fyrir það, hve vel honum væri lagið að koma fram við slík tækifæri. Fr. V. Petersen er fæddur í Khöfn 4. maí 1868, tók lögtræðispróf 1893, varð svo málaflutningsmaður, en þá aðstoðarmaður og síðan skrifstofustjóri í verknaðarmálaráðuneytinu og einn af yfirumsjónarmönnum ríkisjárnbrautanna. 1919 varð hann deildar- sljóri í ríkisráðaneytinu og rikisráðsritari.

x

Óðinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.