Óðinn - 01.01.1930, Blaðsíða 44
14
Ó Ð I N N
Eftirmæli.
Fráfalls hinna merku hjóna, Jóns Bjarnasonar
kaupmanns á Laugavegi 33 í Reykjavik og Guð-
ríðar Eiríksdótlur, konu hans, hefur enn ekki
verið getið opinberlega og vil jeg því minnast
þeirra með nokkrum orðum,
Jón Bjarnason var fæddur að Nesi í Selvogi
1. ágúst 1858. Faðir hans var Bjarni Pjetursson
hreppstjóri í Nesi. Druknaði Bjarni heitinn þar
i brimi 19. marts
1861, með 13 há-
setum sínum, að-
eins 38 ára gam-
all. Var Jón heit-
inn þá lítt á legg
kominn, er hann
misti föður sinn.
Vil jeg nu leyfa
mjer að rckja að
nokkru ælt Jóns,
þvi skapgerð sú,
er mótaði mest
lif hans og starf,
mun hafa verið
nokkuð rík í ætt-
inni.
Eins og áður
er getið, var Jón sál. sonur Bjarna Pjeturssonar
í Nesi i Selvogi. Var Bjarni heitinn fæddur að
Súlholtshjáleigu í Flóa 1. janúar 1823.
Faðir hans var Pjetur bóndi í Súlholtshjáleigu
(f 1836) Guðmundsson frá Galtarstöðum (-[-
1790) Björnssonar á Efravelli, Guðmundssonar
sama staðar (f. c. 1640) Þórólfssonar lögrjettu-
manns á Sandlæk, Guðmundssonar á Hofi á
RangárvöIIum, Eyjólfssonar.
Móðir Þórólfs var Ásdís Sigmundsdóttir frá
Hofi, Þórólfssonar á Suðurreykjum í Mosfells-
sveit, Eyjólfssonar á Hjalla í Ölfusi, er átti Ás-
dísi Pálsdóltur, systur Ögmundar biskups.
Móðir Pjeturs í Súlholtshjáleigu var Guðlaug
Pjetursdóttir frá Nesi í Selvogi Sigurðssonar á
Iljalla Loftssonar, föðursystir Bjarna Sigurðs-
sonar riddara og kaupmanns í Hafnarfirði, svo
að hann og Pjetur voru systkinasynir og ekki
ósennilegt, að Bjarni sonur Pjeturs hafi einmitt
borið nafn Bjarna riddara frænda síns.
Móðir Bjarna Pjeturssonar í Nesi og síðari
kona Pjeturs í Súlholtshjáleigu var Elín Jóns-
dóttir smiðs í Vestra-Geldingaholti í Eystrihrepp
(f 1823) Jónssonar bónda í Hjálmholti og viðar
(f 1787, 83 ára) Gissurarsonar í Tungufelli,
Oddssonar í Jötu, Jónssonar. En móðir Elínar
var Elín Sigurðardóttir frá Vestra-Geldingaholti,
Jónssonar lögrjettumanns á Stóranúpi, Magnús-
sonar í Bræðratungu (f í Kaupmannahöfn 1707)
Sigurðssonar sýslumanns í Þingeyjarsýslu, Magn-
ússonar sýslumanns á Reykhólum (f 1635) Ara-
sonar, sýslumanns í Ögri (f 1652) Magnússonar
hinsprúða,sýslu-
manns i Bæ á
Rauðasandi (f
1591) Jónsson-
ar á Svalbarði
Magnússonar, og
má rekja ælt
þessa á ýmsa
vegu til stór-
menna, bæði til
Lofts ríka á
Möðruv., Eggerls
Hanness., Guð-
brands biskups,
Gísla lögmanns
Hákonars., Jóns
biskups Vigfús-
sonar o. s. frv.
Kona Bjarna Pjeturssonar í Nesi var Ingveldur
Gísladótlir hreppstjóra í Nesi (f 1853) Þorláks-
sonar á Bjarnastöðum í Selvogi (f 1801) Hildi-
brandssonar á Syðraseli í Ytrihrepp og síðar
á Kálfbóli á Skeiðum (f. c. 1698) Eyvindssonar
í Hlið í Ytrihrepp (f. c. 1647) ólafssonar. Síð-
asta kona Gísla í Nesi og móðir Ingveldar var
Petrónella Jónsdóltir frá Neistastöðum í Flóa,
Jónssonar og Gróu Helgadótlur í Fjalli á Skeið-
um, er hin fjölmenna Fjallsætt (Ófeigsætt) er
frá komin. En bróðir Gísla í Nesi var Hildi-
brandur Þorláksson i Hafnarfirði, faðir Árna
Hildibrandssonar og þeirra systkina (Hildi-
brandsætt).
Guðríður sál. var fædd að Miðbýli á Skeið-
um 27. sept. 1864. Hún var dóttir Eiríks bónda
í Miðbýli (f. 1828, f 1865) Eiríkssonar smiðs á
Laugarbökkum í (ílfusi, Þorsteinssonar á Kíl-
hrauni á Skeiðum, Eirikssonar í Bolholti á
Rangárvöllum, Jónssonar s. st. (f. c. 1680) Þór-
arinssonar í Næfurholti (f. c. 1653) Brynjólfs-
Jón Bjarnason.
Guðriður Eiríksdóltir.