Óðinn - 01.07.1934, Side 1
OÐINN
7,—12. BLAÐ
]ÚLÍ-DESEMBER 1934
XXX. ÁR
Hindenburg
og Hitler.
Ferseti þýzka ríkisins, Paul
von Hindenburg yfirhershöfðingi,
andaðist 2. ágúst síðastliðinn, nær
87 ára gamall, fæddur 2. októ-
ber 1847. Hann var fæddur í
Posen og kominn af gömlum,
prússneskum aðalsættum. Um eitt
skeið bernskuáranna ólst hann
upp hjá afa sínum á herrasetr-
inu Neudeck í Vestur-Prússlandi.
Sú jarðeign gekk síðar úr ætt-
inni, en þegar Hindburg varð
áttræður, skutu prússneskir að-
alsmenn saman og gáfu honum
herrasetrið. Var hann þá orðinn
ríkisforseti. Hann bjó þar síðan
það sem eftir var æfinnar og
andaðist þar.
Hindenburg var uppalinn til
hermensku og var orðinn foringi
í þýzka hernum, er Þjóðverjar
tóku Paris og sömdu frið við
Frakka í Versölum 1871. Hann
var þar þá við staddur. En ekki
vildi hann eiga þátt í friðarsamn-
ingunum, sem gerðir voru í sama
salnum að heimsstyrjöldinni lok-
inni. Hann haíði frá æsku gegnt
hernaðarstörfum í þýska hern-
um og hermálaráðuneytinu, án þess að nafn
hans yrði kunnugt út á við, þar til hann var
64 ára gamall, 1911, en sótti þá um lausn og
ætlaði að eyða þvi, sem eftir væri æfinnar, í ró
og næði. En það fór á aðra leið. Skömmu eftir
að heimsstyrjöldin hófst, fjekk hann símskeyti
frá Vilhjálmi keisara, er spurði, hvort hann
Hindenburg.
væri fáanlegur til þess, að taka við herstjórnar-
slörfum. Þetta var 22. ágúst 1914. »Er tilbúinn«,
svaraði Hindenburg samstundis með símskeyti,
og eftir nokkra stund fjekk hann aftur skeyti,
sem sagði að honum væri ælluð herstjórn á
austurvígstöðvunum. Hindenburg hjó þá vestur
í Hannover.