Óðinn - 01.07.1934, Síða 1

Óðinn - 01.07.1934, Síða 1
OÐINN 7,—12. BLAÐ ]ÚLÍ-DESEMBER 1934 XXX. ÁR Hindenburg og Hitler. Ferseti þýzka ríkisins, Paul von Hindenburg yfirhershöfðingi, andaðist 2. ágúst síðastliðinn, nær 87 ára gamall, fæddur 2. októ- ber 1847. Hann var fæddur í Posen og kominn af gömlum, prússneskum aðalsættum. Um eitt skeið bernskuáranna ólst hann upp hjá afa sínum á herrasetr- inu Neudeck í Vestur-Prússlandi. Sú jarðeign gekk síðar úr ætt- inni, en þegar Hindburg varð áttræður, skutu prússneskir að- alsmenn saman og gáfu honum herrasetrið. Var hann þá orðinn ríkisforseti. Hann bjó þar síðan það sem eftir var æfinnar og andaðist þar. Hindenburg var uppalinn til hermensku og var orðinn foringi í þýzka hernum, er Þjóðverjar tóku Paris og sömdu frið við Frakka í Versölum 1871. Hann var þar þá við staddur. En ekki vildi hann eiga þátt í friðarsamn- ingunum, sem gerðir voru í sama salnum að heimsstyrjöldinni lok- inni. Hann haíði frá æsku gegnt hernaðarstörfum í þýska hern- um og hermálaráðuneytinu, án þess að nafn hans yrði kunnugt út á við, þar til hann var 64 ára gamall, 1911, en sótti þá um lausn og ætlaði að eyða þvi, sem eftir væri æfinnar, í ró og næði. En það fór á aðra leið. Skömmu eftir að heimsstyrjöldin hófst, fjekk hann símskeyti frá Vilhjálmi keisara, er spurði, hvort hann Hindenburg. væri fáanlegur til þess, að taka við herstjórnar- slörfum. Þetta var 22. ágúst 1914. »Er tilbúinn«, svaraði Hindenburg samstundis með símskeyti, og eftir nokkra stund fjekk hann aftur skeyti, sem sagði að honum væri ælluð herstjórn á austurvígstöðvunum. Hindenburg hjó þá vestur í Hannover.

x

Óðinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.