Óðinn - 01.07.1934, Qupperneq 3

Óðinn - 01.07.1934, Qupperneq 3
ÓÐI N N 51 Hitler. valdsins hjá Hitler einum, og var samþykt með yfirgnæfandi meiri hluta (89°/o). Saga Hitlers er eitt hið allra einkennilegasta æfintýri, sem gerst hefur á síðustu um- brotatímum. Hann er fæddur 1889 i smábænum Braunau í Austurríki, misti föður sinn 13 ára gamall og móður sína skömmu síðar. Fór þá til Vínar- borgar og ætlaði að komast á málaraskóla, en var vísað frá. Lifði svo lengi allslaus á flæk- ingi um götur stórborgarinnar og komst í kynni við vinnulýð- inn þar, en þetta hafði þau á- hrif á hann, að sögn, að hjá honum grundvallaðist þá hatrið á kenningum jafnaðarmanna og á Gyðingum. 23 ára gamall fór hann til Miinchen og stundaði þá málaraiðn. Tveim árum síðar varð hann sjálfboðaliði í þýska hernum og var þar fjögur síðari ár heimsslyrjaldarinnar. Að henni lokinni settist hann aftur að í Múnchen, komst þá í kynni við Röhm hershöfðingja (sem drepinn var í júní síðastl.) og þar með inn í afskifti af stjórn- málum. 1923 varð hann aðal- maður í uppreistartilraun í Miinchen gegn jafn- aðarmannastjórninni í Berlín, og var þá í fje- Iagi við Ludendorff hershöfðingja. Hitler var þá tekinn fastur og dæmdur í 5 ára fangelsi. Þar skrifaði hann fyrstu bók sína. En hann var brátt látinn laus gegn loforði um, að hann hag- aði sjer framvegis lögum samkvæmt. Eftir þetta varð það aðalstarf hans og áhuga- mál, að gera Nazistahreyfinguna, sem komið hafði upp í Bajern, að alþjóðarhreyfingu. Þetta tókst vonum fyr, og 1930 voru 107 Nazistar kosnir inn í þýska þingið. Hitler var aðalfor- ingi hreyfingarinnar og hún var bundin við hans nafn. 1932 fór fram ríkisforsetakosning og Hitler bauð sig þá fram móti Hindenburg. En Hindenburg sigraði og bauð Hitler þá vara- kanslaraembættið. Því neitaði Hitler, vildi hafa sjálft kanslaraembættið, eða þá ekki neitt. Hann endurtekur það í sífellu, að hann vilji fá alt valdið í sínar hendur. Og 30. janúar 1933 fær hann vilja sínum framgengt og verður kansl- ari. Hann stofnar þegar til nýrra kosninga, og meðan á undirbúningi þeirra stendur, gerist það, að þinghúsbruninn kemur upp í Berlín, sem vakti mikið umtal og athygli um allan heim. 5. marts voru kosningarnar um garð gengnar og Nazistar höfðu náð yfirhönd í þýska þinginu. Það samþykkir alt, sem Hitler vildi fá samþykt, hann kollvarpar lýðveldinu og verður einvaldur. Hann heldur þvi fram, sem líka mun rjett vera, að aldrei hafi stjórnarbylting hjá stórri þjóð gengið fram jafnfriðsamlega og þarna. Síðan er Hitler jafnan nefndur samhliða þeim Stahlin og Mússolini. Hann er yngstur þessara þriggja stórveldaeinvalda Norðurálfunnar og vansjeðast um framtíð hans og þeirrar stjórnar, sem hann hefur skapað. En eftir að hann tók við rikisforsetaembættinu er meira vald sam-

x

Óðinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.