Óðinn - 01.07.1934, Síða 8

Óðinn - 01.07.1934, Síða 8
56 Ó Ð;i N N Þórarinn Jónsson verslunarmaður í Reykjavík er fæddur 1855 í Vestmannaeyjum. Foreldrar hans voru hjónin Jón Árnason og Þuríður Oddsdóttir. Er Jón Pórarinn Jónsson. fæddur 28. marz 1829 og sonar Árna í Dúða í Fljótshlíð (f. u/io 1794) Pálssonar á Neðri-Þverá (f. 1765) Jónssonar á Lágafelli Guðmundssonar og konu hans Ólafar Jónsdóttur. En Þuríður var dóttir Odds útvegsbónda, og mesta skipa- smiðs á sinni tíð í Vestmannaeyjum (f. 1787), Ögmundssonar og konu hans Ingveldar Magnús- dóttur í Ystabæliskoti (f. 14/e 1765), Jónssonar á Lambafelli (f. 1734) Þorleifssonar. Var Þuríður móðir Þórarins tvígift; fyrri mað- ur hennar var Þórarinn Hafliðason frá Eyja- fjöllum, lærði hann húsgagnasmíði í Kaup- mannahöfn og tók þar sveinsbrjef í þeirri iðn, en strax eftir heimkomu sína giftist hann (1B/» 1850) Þuríði, en druknaði 6. marz 1852, og ber Þórarinn nafn hans. Þórarinn ólst upp í Vestmannaeyjum við sjó- mensku, en flutti hingað til Reykjavíkur 1874. Var hann lengi sjómaður hjer, en laust eftir 1890 varð hann pakkhússtjóri við Zimsens- verslun hjer, og var það síðan þar til verslunin hætti, eða alls 39 ár. Um mörg ár var þar mikil fiskiskipaafgreiðsla og botnvörpunga (Islands- fjelagið) og voru þeir því margir, sem á þessum árum kyntust Þórarni »hjá Zimsen«, sem hann oftast var nefndur, og luku allir upp einum munni, að samviskusamari, trúrri og ábyggi- legri manni hafi þeir ekki kynst. Og harla er það eftirtektarvert, að eftir jafnlangan starfsferil eru allir samdóma um, að þar sje góður mað- ur sem Þórarinn er, og öllum þykir vænt um hann. Að öðrum málum hefur Þórarinn lítið gefið sig. Strax eftir stofnun Templarareglunnar 1885 gekk hann í stúkuna Verðandi nr. 9, en fór þaðan síðan í stúkuna Einingin, og hefur þar starfað með sömu trúmensku og árvekni sem annarsstaðar, altaf viðbúinn að inna það af hendi, sem honum hefur verið falið, og altaf fús til hjálpar bæði um fje og annað, er hefur hentað fjelagi hans. Þeir menn, er vinna störf sín með jafnmikilli trúmensku og árvekni og Þórarinn hefur gert, eru bestu og traustustu þegnar þjóðfjelagsins, og ef aðrir vildu feta í fótspor hans, þá væri það víst, að þjóð vor stæði sig vel, og þyrfti ekki að taka lán á lán ofan. Sá hugsunarháttur er Þórarni fjarri skapi; hann vill hjálpa til að skapa verðmæti en ekki eyða þeim. Tvær dætur hefur Þórarinn eignast, Rósu, konu Haraldar Sigurðssonar forstjóra Elliheim- ilisins, og Lilju, sem er ógift mey, við skrif- stofustörf. n legan vöxt trjánna. Þar má sjá. hvaða undan- farin ár hafa verið góð eða lakleg grassprettu- sumur og hagstæð fyrir trjávöxtinn. Barrtrjánum var hvergi nærrl búinn þar staður, sem skilyrði eru best að rækta skóg á Þingvöll- um. En hann er þó nógu góður til að sýna og sanna, að takast má, með þrautseigju og þolin- mæði að rækta útlendar trjátegjundir hjer á landi. Reynt verður að halda áfram trjáræktarstarf- inu á Þingvöllum, sem þegar er byrjað á. Síð- astliðið vor var sú nýbreytni tekin upp, að fá nokkur börn úr efri bekkjum barnaskólans í Reykjavík til að gróðursetja trjáplöntur á frið- lýsta svæðinu. Þessi tilraun tókst vonum frem- ur, og verður reynt að halda fyrirtæki þessu á- fram, ef kringumstæður leyfa. Vel gætu fleiri

x

Óðinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.