Óðinn - 01.07.1934, Page 10

Óðinn - 01.07.1934, Page 10
58 ÓÐINN Frú Metta Steinunn Hansdóttir. Frú Metta Steinunn Hansdóttir, f. Hoffmann, var fædd þann 29. október 1848 á Bakkafit á Búðum á Snæfellsnesi. Foreldrar hennar voru merkishjónin Ingunn Jónsdóttir og Hans Pjet- ursson Hoilmann. Eignuðust þau hjón 10 dætur og 2 sonu. Hans, er dó um fermingu, og Pjetur, er flutt- ist á Akranes um 1880. Bygði hann þar hús, er síðan er við hann kent og kallað Hoff- mannshús. Versl- aði hann svo í því húsi, en stundaði jafnframt fiski- veiðar; var hinn ötulasti formað- ur, en druknaði ásamt mörgum góðum mönnum í mann- skaðanum mikla í janúar 1884. Þegar Metta var tveggja ára gömul var hún tekin til fósturs af Guðbjörgu móðursystur sinni og manni hennar Guðmundi Árnasyni, er bjuggu í Böðvarshólum í Húnavatnssýslu. Voru þau hjón barnlaus, en ólu mörg börn upp. Naut Metta þar hins besta uppeldis og ástríkis til 12 ára aldurs, er Guðmundur dó, þá háaldraður maður. Hafði hann nokkru áður mist Guð- björgu konu sína og farið að Klömbrum til Frú Mella Sleinunn Hansdótlir. neyddir til að gera, er þeir stofnuðu sinn fyrsta þjóðgarð. En ýmislegt bendir á, að til muni vera menn meðal Islendinga, sem ekki sjeu eftirbátar þeirra, er láta stjórnast af skemdar- fýst, og eru boðnir og búnir til að traðka lög- um og rjetti í eiginhagsmunaskyni, þar sem al- menningseign á að njóta verndar og friðar. Þó má ætla að vaxandi þekking og fræðsla um þjóðþrifa- og menningarmál breyti svo skap- gerð manna og hugsunarhætti að lokum, að ill- gresið kafni. * Snorra bónda, er þar bjó, hins mesta merkis- manns. Fluttist Metta þá aftur til foreldra sinna að Búðum, en misti skömmu síðar föður sinn. Var hún svo með móður sinni og Pjetri nokk- ur ár. Fór Metta þá til Torfa Thorgímsen versl- unarstjóra í ólafsvík og Sigríðar konu hans. Var hún hjá þeim hjónum í 10 ár. Þessu næst fór hún aftur til móður sinnar, er bjó með Pjetri syni sínum og var hjá þeim þar til móðir hennar dó. Fluttist þá til Akranes með Pjetri bróður sínum og var bústýra hjá honum þar til hann druknaði, eins og fyr er sagt. Hinn 28. ágúst 1884 giftist Metta eftirlifandi manni sinum, Sveini Guðmundssyni fyrv. kaup- manni og hreppstjóra á Akranesi. Er Sveinn alkunnur sæmdarmaður. Höfðu þau verið nær- felt 50 ár í hjónabandi, er hún ljest. Eignuðust þau hjón 3 dætur, hinar myndarlegustu og bestu konur, enda hafa þær fengið hið besta uppeldi. Voru þær allar hjá sinni ástkæru móður, er hún Ijest, þær Petrea Guðmundína bóksali á Akranesi, Ingunn, gift Haraldi Böðvarssyni út- gerðarmanni á Akranesi, og Matthildur, sem er bústýra hjá föður sínum, og annaðist móður sina siðustu æfiárin af frábærri snild. Hjer er sannrar konu að minnast, því frú Melta var ein hin mesta sæmdar og fyrirmynd- arkona í hvívetna, ástrikasta móðir og besta húsfreyja. Bar heimili þeirra hjóna þess ljósast- an vott, sem var hið prýðilegasta í alla staði og sönn fyrirmynd. Væri betur að fsland ætti mörg slík heimili. Af slíkum heimilum er margt gott að læra; þau eru bestu skólarnir. Frú Metta var fríðleikskona og hin fyrir- mannlegasta. Vinföst og trygglynd, svo að íáir voru slíkir. Átti bjargfasta trú, og mesta gleði hennar var, að gera gott, gleðja og hlynna að þeim, sem áltu bágt. Þekki jeg það af eigin reynd. Og ótaldir munu þeir, lífs og liðnir, sem eru í þakkarskuld við hana. Voru þau hjón mjög samvalin um gestrisni og höfðingsskap. Um frú Meltu er svo margt gott að segja að það gæti orðið heil bók. Góð og fögur minning geymist í hugum ást- vina og samferðamanna. Myndin, sem fylgir þessum fáu orðum, var tekin af Mettu sál. nokkrum dögum áður en hún varð 85 ára. Mynd Sveins og æfiágrip er í októberblaði óðins 1911. AlmritcsinQiir. A

x

Óðinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.