Óðinn - 01.07.1934, Side 12
60
ÓÐINN
Sigurjón Gíslason
í Kringlu.
Sigurjón Gíslason á Kringlu er fæddur 5. júlí
1866 á Heimalandi í Hraungerðishreppi i Árnes-
sýslu. Foreldrar hans voru þau hjónin Gísli
Gunnarsson bóndi
þar og kona hans
Halla Jónsdóttir
Björnssonar frá
Galtafelli í Hruna-
mannahr. Gunn-
ar faðir Gísla bjó
í Ölvaldsholti í
Hraungerðishr. og
var góður bóndi.
Sú litla saga er
af Jóni í Galtafelli,
að eitt sinn fór
hann að sækja
soðningu út í Sel-
vog á vertíðinni,
en Gunnar bóndi
reri úti i Selvogi;
sá kona hans, Þórunn, til ferða Jóns, hljóp til hans
og beiddi hann um að taka af sjer 1 hest til
Gunnars undir soðningu. Jón spurði, hvorl hest-
urinn væri þá tilbúinn, kvað hún hann vera
ójárnaðan; sagðist þá Jón ekki tala um það, en
þegar hann kom aftur, var Jón með soðninguna
frá Gunnari á 1 hesti sínum, og afhenti Þór-
unni; henni þótti þetta hafa verið fyrirboði
þess, er síðar varð, að börn þeirra urðu hjón,
Gísli og Halla. Ekki kann jeg þessa ættfærslu,
en það veit jeg, að þeir Markús Þorsteinsson
Sigurjón Gíslason.
semi, er hjer var ætíð að mæta. Kærleikurinn
er ekki tómt tilfinningamál. Hann er starfandi
afl, sem vinnur að því að bæta annara böl,
greiða annara veg, hugga þá sem hryggir eru,
styðja þá sem veikir eru, leiðbeina þeim sem
viltir fara, gefa þeim sem þurfandi eru og
liðsinna á ýmsa vegu þeim sem bágt eiga, í
einu orði sagt, hjálpa til þess í orði og verki
eftir mætti, efnum og ástæðum, að öðrum geti
liðið vel«.
Runól/ur Bjarnason.
st
organleikari í Reykjavik og þau systkini og
Sigurjón eru systrabörn, en þeir Pjetur Jóns-
son, verslunarmaður frá Hraunprýði í Hafnar-
firði, og Sigurjón voru systkinasynir, því Þór-
unn móðir Pjeturs og þeirra systkina var systir
Gísla föður Sigurjóns.
Þau Gísli og Halla bjuggu á fremur ljelegu
býli, sem nú er lagt í eyði, og liggur undir
Hraungerði, enda voru þau fátæk allan sinn bú-
skap. Börn áttu þau 6. Þar af dóu 2 ung. Þau,
sem upp komust, voru Stefán Gíslason læknir,
síðast í Mýrdaishjeraði, Sigurjón, sem hjer verð-
ur dálítið ger sagt frá, og 2 systur, Gunnþór-
unn og Guðrún, sem báðar giftust austur í
Múlasýslum. Gísli Gunnarsson dó á Kolviðar-
hóli 1914. Sjá »óðinn«, janúar 1917.
Sigurjón ólst upp hjá foreldrum sínum, og
var hjá þeim þar til þau hættu að búa 1891.
Var hann þeirra besta stoð við heimilið, og gekk
þá vinna hans öll til þeirra fyrir aðeins fæði og
ljeleg föt, eins og þá var tílt með börn, sem
unnu bjá efnalitlum foreldrum, því fremur sem
hinn bróðir hans, Stefán, gekk mentaveginn.
Vorið 1891 fluttist Sigurjón að Kringlu í
Grímsnesi og byrjaði búskap þar á hálfri jörð-
inni. Fluttu þá foreldrar hans með honum
þangað. Giftist hann konu sinni, Jódisi Sig-
mundsdóttur frá Kambi í Hróarsholtshverfi,
vorið 1891, hafa þau búið á Kringlu siðan.
Þau hafa átt saman i hjónabandi 10 börn, 2
dóu ung, en 8 hafa lifað og alist upp heima.
Þegar Sigurjón reisti bú, var öll eign hans
230 krónur, og getur það varla minna verið, og
því fremur er þetta lítið, sem jörðin var í
mestu niðurníðslu. Hver kofi niðurfallinn og
tún kargaþýft, og það, sem hygnu mönnunum
þykir ekki ráðlegt, að börn fæddust á hverju
ári. Var og ekki laust við að sveitarstjórn þætti
nóg um þennan dugnað hjá þeim nýaðkomnu
ungu hjónunum, en takmarkanir barneigna hjá
þeim, sem annars gátu átt börn, ekki komnar í
móð, en sú var nú tíðin, að það þótti ódæði
að ung hjón áttu börn, ef efnalaus voru, eða
lítil efni voru, svo að dæmi voru til að dugn-
aðarhjón, sem áttu 2 börn, voru kostuð af
hreppunum til Ameríku, en sem betur fer er nú
sú óöld liðin hjá. En þau Sigurjón og Jódís
voru nú ekki á þeirri riminni, að flýja undan
erfiðleikunum. Þau höfðu fengið bæði í vöggu-
gjöf framúrskarandi ljettlyndi, kátinu og fjör, og