Óðinn - 01.07.1934, Side 13
Ó Ð I N N
61
mikinn dugnað og reglusemi. Þau vildu horfast
í augu við erfiðleikana, og sigra þá, en saga
þeirra er líka óslitin saga fátæktar einyrkjanna
og barnamannanna, og leiguliðanna, eins og
hún hefur verið erfiðust, en sem þó sigra að
lokum.
Þess er áður getið, að strax á fyrstu búskap-
arárum þeirra hlóðst á þau ómegðin, en efnin
engin og lánstraust mjög takmarkað, helst búð-
arskuldir, sem ekki þóttu mjög hollar, svo til
þess að koma barnahópnum fram þurfti mikið
að vinna, enda var það gert. Marga dagana var
unnið frá kl. 4 að morgni til kl. 11 að kvöldi,
eða 17—18 tíma vinna, og mundi það nú þykja
æði langur vinnutími, því um vandalaust fólk
var varla að tala, búið bar það ekki, maður sá
ekki heldur óþarfa hlutina í Kringlu á þeim
árum, en saknaði margs, sem þörf var á, af því
nauðsynlegasta.
Á þessum búskaparárum, sem Sigurjón befur
búið, hefur hann sljettað alt túnið að kalla
á sínum parti, eða ll1/* dagsláttu; þetta hefur
hann alt sljettað sjálfur með spaða og skóílu.
Girt alt túnið með gaddavírsgirðingu, bygt upp
allan bæinn, 11 X 14 álna hús undir járnþaki.
Heyhlöðu yfir um 700 hesta, og nú fyrir nokkru
mjög vandað fjós fyrir 8 nautgripi, 15 X 6
álnir með sementuðum flór og fóðurgangi,
vandað og vel gert. Svo og mjög vel vandað
fjárhús yfir 100 fjár, á stöfum, með járnþaki.
Jörðina keypti hann hálfa af kirkjujarðasjóði
1919, en hinn partinn keypti sonur hans Sig-
urgeir, sem hjá honum er, 1925, svo nú eiga
þeir feðgar alla jörðina og búa á henni. Þetta
kalla jeg að sigra alla erfiðleika. Það er sitt-
hvað, að koma nú að Kringlu eða var fyrir 37
árum. Kargaþýfið og moldarkofarnir horfið, en
eggsljett tún, vel hirtur bær og fjenaðarhús
komin í staðinn. Moldargólfsbaðstofan horfin,
en falleg, máluð baðstofa og uppbúin sængur-
rúm komin í staðinn, börnin stór og kát, öll
heima, uppkomin og dugleg, nema þau sem
farin eru að eiga með sig sjálf. Það, sem er ó-
breytt á Kringlu, eru húsbændurnir; þótt þau
sjeu komin á 7. tuginn, er enn sama fjörið í
þeim báðum, sama ljettlyndið, sami kjarkurinn,
sama óbreytta trúin á sigurinn, þessir eigin-
leikar hafa þeim orðið drjúgir, og verða þeim
drýgstir.
Jeg sagði í upphafi, að þau hefðu verið reglu-
menn. Sigurjón hefur verið það í fylsta orði
þeirrar merkingar. Hann hefur haldið dagbók
öll þessi búskaparár. í þeirri bók er margt
fróðlegt. Líklega hefur hann ekki látið af hendi
eina einustu krónu í búskap sínum, sem ekki
var skrifuð. Þessi bók er merkileg. Hún er í
rauninni saga búskapar hans, og saga einyrkja
bændanna á Suðurlandi i 37 ár.
Meðal annars er í bók þessari efnahagur hans
á hverju ári. Uttekt og innlegg hans. Fjenaðar-
tal hans og fjenaðarförgun. Tíðarfar, verðlag
o. m. fl. Á þessum árum hefur hann meðal
annars mist á 8. hundrað sauðfjár, 1 hest og 3
kýr. í barnauppeldi, eftir hvers árs almennu
verði, hefur hann varið 25,000 kr. 1 jarðargjald,
vexti af lánum, þinggjöld, útsvar o. fl. 25,000 kr.,
eða þessir liðir 2 um 50 þús. kr.
Alt þetta og m. fl. er í þessari bók Sigurjóns.
Þótt þetta sje ekki reglulegt búreikningsform,
er þetta mjög fróðlegt og eftirbreytnisvert, sem
mundi gera flesta bændur hygnari og rikari, ef
þeir fylgdu þessari gullvægu reglu Sigurjóns,
enda gerði Búnaðarfjelag Islands að virða þetta,
því það hefur nú fengið hók þessa til eignar,
og verðlaunað Sigurjón með kr. 100,00. Spá
mín er sú, að einhver fræðimaðurínn hafi gagn
og gaman af þessari skruddu eftir nokkra ára-
tugi. Sigurjón er vel greindur maður, og les
alt, sem hann nær í, og er minnugur, söngelsk-
ur og syngur vel, mátulega stælugjarn, og læt-
ur tæplega sannfærast i orðasennu, og hefði
hann notið mentunar í æsku, mundi hann hafa
verið talinn »kjaftur góður«. það er altaf hress-
andi að hitta hann, hvort sem maður nýtur
gestrisni hans heima hjá honum eða á förnum
vegi. Þar er engin lognmolla á ferðinni, heldur
stendur af honum gnýr og gustur, og veri það
lengst. Þetta er f fám orðum sagt saga þessara
hjóna, óslitinn sigur. Og er ekki gaman að sjá
fátæku einyrkjana sigra svona vel að lokum?
Böðvar Magnússon.
/
Sendibrjef Ben. Gröndals, Ymislegt
eftir Ben. Gröndal og JE>jódhá,tíö»rmynd
Gröndals (Fjallkonumyndin) fást hjá bóksölum.