Óðinn - 01.07.1934, Page 14

Óðinn - 01.07.1934, Page 14
62 ÓÐINN Guðmundur Magnússon frá t>yrli. Guðmundur Magnússon frá Þyrli andaðist að heimili sonar síns, Magnúsar prests í ólafsvík, 24. maí 1930. Guðmundur heitinn var fæddur að Þúfukoti í Kjós 22. sept. 1858. Foreldrar hans vóru Magnús Guðmundsson frá Þúfu í Kjós og kona hans Kristrún Guðmundsdóttir frá Sandi í sömu sveit. Guðmundur sál. var því af góðu bergi brotinn í báðar ættir. Kristrún móðir hans átt ætt sina að rekja til Þorvarðar hins rika í Brautarholti; er margt ágætra manna frá hon- um komið. En Guðmundur föðurfaðir hans var dóttursonur Guðmundar Þórðarsonar á Neðra- hálsi í Kjós. Frá Guðmundi Þórðarsyni á Neðra- Hálsi er mikill og merkur ættbogi kominn, og ætt þá má rekja til Gests hins spaka í Haga á Barðaströnd, Ólafs pá og margra hinna göfgustu og bestu manna fornaldarinnar. Árið 1895 kvæntist Guðmundur eftirlifandi konu sinni, Kristínu Einarsdóttur frá Flekkudal í Kjós; vóru þau hjón því systkinabörn að frændsemi. Þeim hjónum varð sjö barna auðið, sex sona og einnar dóltur, sem öll eru enn á lífi. Búskap sinn byrjuðu þau á Innra-Hólmi á Akranesi. Þaðan fluttu þau að Brekku á Hval- fjarðarströnd og þaðan fluttu þau vorið 1901 að Þyrli í sömu sveit og bjuggu þar alt til þess er þau fluttu til Beykjavíkur 1911. Margir munu kannast við Guðmund á Þyrli, því alt til þess að hinar tíðu ferðir hófust sjó- leiðina milli Beykjavikur og Borgarness, lá leið flestra þeirra, sem fóru frá Reykjavík vestur eða norður, eða að norðan eða vestan til Reykja- víkur, fram hjá garði að Þyrli, því hann er í þjóðleið þá farið er fyrir Hvalfjarðarbotn, og þótti hæfileg dagleið á milli Þyrils og Reykja- víkur. Að Þyrli kom því margur vegfarandi, og vóru þau hjón samtaka mjög í því að taka með lipurð og velvild á móti gestum sinum; munu flestir hinna mörgu ferðamanna, sem komu til þeirra að Þyrli, minnast þeirra hjóna með vinsemd og þakklæti. Þeir, sem ekki reyndu sjálfir, munu varla trúa, hvað honum var Ijúft að taka á móti gest- um sínum og sýna þeim velvild og vinsemd. Hann var þýður í viðmóti og allra manna skemtilegastur í viðræðum, fróður og athugull um hverskonar málefni sem um var rætt. Það vissi jeg, sem þetta rita, að oft þótti honum sárt að hverfa frá viðræðum við fróða og prúða gesti sína, því hinar margþættu annir leyfðu honum oft ekki að verja tímanum til þess. Ábýli sitt sat hann prýðilega, bygði snoturt timburhús í staðinn fyrir gamla bæinn, girti túnið og sljeltaði mikinn hluta þess. Þegar hann kom að Þyrli, fann hann um vorið eitt æðar- hreiður í Þyrilsnesi. Hann friðaði svo nesið og hlúði svo að varpinu, að eftir fá ár mátti telja æðarvarpið til hlunninda á jörðinni. Hann var hversdagslega kátur og skemtinn og hafði mikið yndi af vel kveðnum kvæðum, enda var hann sjálfur prýðilegur hagyrðingur. Honum var mjög Ijett að kasta fram saklaus- um gamanvísum, sjer og öðrum til skemtunar, en allar voru þær fágaðar að efni og formi, því málið ljek honum á vörum. Er nú mestur hluti þeirra hulinn í djúpi gleymskunnar, þvi fátt eitt skrifaði hann upp af ljóðum sínurn, því hann kvað aðeins sjer til hugarhægðar, en hvorki sjer til lofs nje frægðar. Jeg minnist til dæmis í þessu sambandi, að eilt sinn vórum við Guð- mundur sál. að slá sendinn og mjög snöggan harðvellisbala; gekk verkið ekki vel, sem von til var. Þá segir Guðmundur við mig alt í einu: »Jeg held við verðum að hælta við þelta og fara bara að yrkja«. »Þá það«, sagði jeg og kom með vísuhelming, sem hann botnaði þegar. Hann hjelt svo áfram að brýna ljá- inn sinn og kvað: Ekki hót jeg geri gagn, grimt þó brýni ljáinn. Pað er eins og ekið vagn’ yfir væri stráin. Hann var verkmaður góður, en sláttumaður ágætur. Eitt sinn á efri árum sinum var hann að slætti með tveimur ágætum sláttumönnum, sem honum fanst að væru sjer betri sláttu- menn. Dugnaði þeirra en ódugnaði sinum lýsti hann á mjög skemtilegan hátt í þessari gamanvísu, er hann kvað eitt sinn þegar þeir voru að slætti: Beita’ i ergi beittum geir, blómin fergja i valinn Jón og Bergur, jötnar tveir, jeg verð hvergi talinn. Oft kvaddi hann liðið sumar eða vetur með vísum, er fólu í sjer lýsing á tíðarfarinu. Eina

x

Óðinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.