Óðinn - 01.07.1934, Síða 31

Óðinn - 01.07.1934, Síða 31
ÓÐINN 79 á móti mjer Carl Bindslev, sá er jeg hafði sjeð fyrsta morguninn í Kaupmannahöfn. ]eg hafði ætlað mjer að dvelja í K. F. U. M. og hafa þar bækistöð mína í starfinn fyrir drengina í K. F. U. M. þá viku, sem jeg ætlaði að vera þar. En Bindslev hafði fengið því breytt þannig, að jeg skyldi dvelja í húsi foreldra sinna og tók mig með sjer þangað. Faðir hans var kaupmaður og bjó í einum fegursta stað bæjarins, sem heitir Hasselris, og var sá borgarhluti að byggj- ast og var mest lystihúsahverfi. Bjó fjölskyldan í einu slíku húsi, forkunnar fögru, með öllum þægind- um. Sagði Carl mjer að hann hefði hlakkað mjög til að hafa mig hjá sjer heila viku. En jeg varð ákaf- lega leiður yfir þessu, og fanst mjer jeg vera svo út úr, og þar að auki svo ófrjáls, að vera hjá svo fínu fólki. Jeg bældi samt niður hið illa skap, sem jeg komst í við þetta, en mjer var talsvert þungt niðri fyrir og mig langaði til að vera í K. F. U. M. þægindalítið og vera frjáls. Um kvöldið var jeg þar heima hjá fjöl- skyldu vinar míns. Kaupmaðurinn var mjög vel ment- aður maður og kona hans skemtileg og mjög virðu- leg um leið, og þrjú börn þeirra stálpuð mjög skemti- leg. Þetta hefði því verið hið yndislegasta kvöld, ef jeg hefði ekki alt af verið með hugann niðri í K. F. U. M. Jeg reyndi þó til þess að láta ekkert bera á vonbrigðum mínum. En þegar við Carl vor- um koranir upp í svefnherbergi okkar; við áttum að vera í herbergi saman, sagði hann: »Segðu mjer, hvað veldur ógleði þinni? — Hvað er að?« Jeg spurði: »Er nokkuð að? Af hverju heldur þú það?« »Jeg veit það ekki, en mjer finst það sje eitthvað. Jeg veit ekki í hverju það liggur*. — »Hefur þú merkt það á mjer?« spurði jeg. »Nei, en jeg finn samt að það er eins og veggur milli okkar*. Jeg eyddi þessu, og sárnaði mjer við sjálfan mig, að ráða ekki betur við tilfinningar mínar og sjerlund. Svo þegar við höfð- um haldið kvöldandakt okkar saman, sagði jeg: »Það er víst best að tala út um málið«, og svo sagði jeg honum alt það, sem mjer bjó í brjósti, og við kom- um okkur saman um, að jeg gæti verið í K. F. U. M. öllum stundum, sem jeg vildi, og starfað þar eins og jeg vildi. Svo varð þetta þannig, og leið mjer æ betur hjá þessu nýja vinafólki, því lengur sem jeg var þar. Jeg kyntist og ýmsum ágætum piltum, eink- um meðal skólapilta frá Latínuskólanum. Þar á meðal var Pjetur Filtenborg, Viggo Múnck og Arthúr Jen- sen. Þeir voru allir mjög mannvænlegir, og höfðu áhuga mikinn á latínufræðum, og mjer þótti skemti- leg samvera við þá. Seinasta kvöldið, sem jeg var í Álaborg að því sinni, bauð jeg til mín í K. F. U. M. öllum latínuskólanemendum, sem voru meðlimir í K. F. U. M. og voru þeir átta alls; það var mjög skemti- legt kvöld, og stofnuðu þeir þá með sjer latínuskóla- pilta sveit innan fjelagsins (Latiner-kredsen). For- maður K. F. U. M., vefnaðarvörukaupmaður Ðroder- sen, var mjer mjög góður og var mjer eitt kvöld boðið til hans ásamt stjórn fjelagsins. Margt var rætt um fjelagsmál og voru þeir í vandræðum með að fá framkvæmdastjóra, því að sá framkvæmdarstjóri, sem þeir höfðu haft, vinur minn Kylling, er jeg hef getið um áður, var fluttur til Haderslev á Suður-Jótlandi, til þess að vera starfsmaður fyrir dönsku söfn- uðina þar í bænum. Hafði Álaborgarfjelagið engan getað fengið í staðinn. Þegar jeg mintist á Kylling, kom mjer til hugar ferð, sem jeg fór suður til Haderslev þá um haustið. Var það eftir áskorun einmitt frá Kylling. Jeg var þar í 3 daga í besta yfirlæti hjá dönsku fólki þar í borginni. Jeg kunni samt ekki vel við mig þar, því mjer fanst eitthvað ónáttúrlegt við alt þetta sambland á þýzku og dönsku, bæði máli og öðru. Þegar jeg fór frá Haderslev með síðdegislest, urðu mjer sam- ferða í klefa einir 8 latínuskólapiltar, sem voru að fara heim til sín eftir skólatíma. Þeir töluðu allir þýzku saman. Svo spurði jeg þá, hvort þeir gætu ekki talað dönsku. Jú, það gátu þelr, því að þeir væru allir frá dönskum heimilum. Jeg spurði því, hversvegna þeir töluðu þá þýzku saman. Þeir svör- uðu því, að þeir mættu til að tala þýzku á skólan- um. »En hversvegna viljið þið tala þetta framandi mál, er þið eruð komnir út fyrir skólann*. Þeir urðu þögulir við og svo sátu þeir þegjandi alllanga stund. Svo á næstu stöð fór maður út, sem setið hafði í einu horni og ekki talað eitt einasta orð. Skólapilt- arnir sátu þegjandi meðan lestin stóð á stöðinni. Svo lagði lestin af stað og jeg var einn í klefa með pilt- unum. Þá losnaði tungubandið. Þeir sögðust hafa verið svo hræddir um að þessi ókunni maður væri ef til vill njósnari og að jeg yrði tekinn fastur fyrir að kalla þýzkuna »framandi mál«. Jeg sagði að það hefði nú ekki gert svo mikið til, því að þeir hefðu ekki getað gert mjer annað en rekið mig úr landi og jeg væri á leiðinni þaðan hvort sem væri. Eftir það voru þeir hinir ljúfustu og höfðu gaman af að heyra um Island. Við skildum sem bestu vinir. Eftir þetta bar leiðum mínum aldrei til Suður-Jót- lands fyr en það var aftur sameinað Danmörk. Frá Álaborg fór jeg til Árósa og var þar í heila viku og starfaði heilmikið í fjelaginu þar, og var þar í hávegum. Eitt kvöld átti jeg að tala fyrir eitthvað

x

Óðinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.