Óðinn - 01.07.1934, Page 40
88
ÓÐINN
Sigurður Ðárðarson
hómópati.
Síðastliðið sumar fullnaði smiðurinn, bóndinn
og læknirinn, Sigurður Bárðason, nú búsettur
að Blaine, Washington, U. S. A. áttræðisaldurinn.
Þykir því hlýða að rekja hjer ætt hans og æfi-
feril að nokkru. Begar sá, er þetta ritar, var
staddur í Blaine sumarið 1929 vakti öldungur
þessi, flestum fremur, eftirtekt hans og aðdáun,
sakir óvenjulega fyrirmannlegs yfirbragðs, sam-
fara fjörmiklum vitsmunum og fróðleiksauði.
Síðan hefur kynningin aukist, og á allan hátt
staðfest það hugboð, er vaknaði við fyrstu fundi.
Sigurður er i þennan heim borinn árla í heið-
skírum, íslenskum sumardegi kl. 9 að morgni,
12. júní, ár 1851, að Litla-Hrauni, Kolbeinstaða-
hreppi, Hnappadalssýslu. Bjuggu foreldrar hans
þar þá ágætu búi. Faðir hans var Bárður (f. 18.
nóvember 1811), listasmiður á trje og málm,
Sigurðsson (f. um 1780 d. 16. mars 1860),
bónda á Miðhrauni og víðar, Bárðarsonar (f.
1753 d. 19. maí 1821), bónda á Keiksbakka á
Skógarströnd, síðast á Fáskrúðsbakka í Mikla-
holtshreppi, Þorsteinssonar, bónda á Valshamri
á Skógarströnd, Illugasonar (f. 1690), bónda á
Vörðufelli á Skógarströnd, Þorsteinssonar (f. 1650)
er bjó á Árnahúsum á Skógarströnd 1703, Illuga-
sonar bónda, í Bíldsey, Jónssonar (f. 1584 d. 1667)
fálkafangara og merkisbónda í Brokey, sem
fyrstur hreinsaði dún hjer á landi, Pjeturssonar,
bónda í Arnarfirði, Pjeturssonar. Móðir Sigurðar
læknis, kona Bárðar yngri að Litlahrauni, var
Sólveig, frábær fríðleiks og myndarkona, dóttir
hins mikla þjóðhaga smiðs Árna (f. um 1769)
að Borg í Miklaholtshreppi, Jónssonarað norðan1)
Guðmundssonar. Móðir Árna á Borg var Guð-
riður (f. 1749) Egilsdóttir bónda í Arnarholti
Jónssonar. Kona Árna var Guðríður Kársdóttir
bónda í Munaðarnesi, Ólafssonar smiðs á Lund-
um í Stafholtstungum, bróður Pjeturs ríka í
ólafsvík undir jökli.
Kona Sigurðar Bárðarsonar á Miðhrauni var
Guðrún (f. 1780 d. 11. apríl 1848) Eiríksdóttir,
Jónssonar, bónda á Ökrum á Mýrum, Gíslasonar
lögrjettumanns, Vogi (d. 1713), Þórðarsonar,
») í æfiminningu Jóhanns G. Sigurðssonar cr talið
að Árni væri sonur Jóns Jónssonar Hólaráðsmanns Árna-
sonar, en petta er rangt.
lögrjettumanns á Ökrum, Finnssonar (d. 20. febr.
1687 82 ára), Sigurðssonar, prests í Miklaholti
(d. 1646), Finnssonar á Ökrum Steindórssonar,
sýslumanns á Ökrum, Árnarssonar sýslumanns á
Ökrum, Finnssonar, lögrjettumanns í Ljáskóg-
um, Pjeturssonar.
Sigurður var yngstur 5 barna þeirra Bárðar
og Sólveigar. Elstur var Lárus, dó ungur. Pá
Lilja Krislín, dó ung. Pá Ingveldur (d.1883), átti
Jónas Jónasson frá Kársstöðum í Helgafellssveit;
þau áltu 3 börn; 2 dóu ung; upp komst Hall-
dóra Elisabet; giftist eigi, dó í grend við Blaine,
ár 1925. Yngveldur var heitin eftir Ingveldi
Grímólfsdóttur í Máfahlíð, hálfsystur Guðrúnar
Eiríksdóttur á Litlahrauni, móður Bárðar yngra.
Þá Elín; átti Halldór Guðmundsson bónda á
Miðhrauni í Miklaholtshreppi. Þeirra börn: frú
Oddfríður Eiríksson, San Diego, Californía, Guð-
mundur, bóndi í ólafsey, Lárus, prestur að
Breiðabólstað á Skógarströnd, listaskrifarinn góð-
kunni, dó ár 1918; Póra, kona Jóns ólafssonar
útgerðarmanns og bankastjóra í Reykjavík; Lilja,
kona Ingólfs Daðasonar, verkstjóra í Reykjavík,
Elín Bárðardóttir (d. 1931) var heitin eftir Elínu
Helgadóttur alþingismanns að Vogi á Mýrum,
bróður Sigurðar Dannebrogsmanns að Jörfa í
Kolbeinsstaðahreppi, föður sjera Helga rúnafræð-
ings, er best studdi Sigurð málara við stofnun
forngripasafnins. Móðir þeirra bræðra, Helga og
Sigurðar, var Elín Egilsdóttir smiðs í Arnarholti,
móðursystir Árna á Borg.
Þá Sigurður læknir, heitir eftir afa sinum.
Hálfbræður Sigurðar:
a. Kristján, Bdrðarson og Jóhönnu Guðmunds-
dóttur, Símonarsonar frá Gaul, Staðarsveit.
Fluttist frá Hraunsmúla, Kolbeinsstaðahreppi,
ásamt fjölskyldu sinni, vestur um haf, ár 1889;
settist að í Winnipeg; bjó síðar lengi í Selkirk;
kvæntur Ingveldi Porsteinsdóttur frá Ytrihraun-
dal Brandssonar og áttu þau tvö myndarleg
börn, Þorstein og Porbjörgu.
b. Kristójer, Bárðarson og Guðbjargar Jónsdótlur;
fluttist kvæntur til Reykjavíkur ár 1883, og
hefur búið þær siðan, kvæntur Ástríði Jóns-
dóttur Einarssonar frá Uppsölum í Hálsa-
sveit, eiga börn.
Auðgert væri að rekja ætt Sigurðar til fjölda
merkra manna í fortíð og samtíð. En það, sem
þegar er fram tekið, skýrir til fullnustu það, sem
engum dylst, er til þekkir, að glæsilegir frum-