Óðinn - 01.07.1935, Page 17

Óðinn - 01.07.1935, Page 17
Ó Ð I N N 65 Reynifellshjónin, Árni og Guðrún. Bæði hafa mjer borist tilmæli um það, að Iáta hjóna þessara getið að einhverju leyti, og líka þykir mörgum það sjerkennilegt, að þau eru bæði talin Guðmundar börn frá Keldum, en voru þar þó sam- tíða og á líkum aldri. Hefur þetta ruglað suma í ríminu, og jafnvel góð- um ættfræðingum er óljóst, hversu tengdum hjer að lútandi var háttað, (þrátt fyrir Sagnaþætti Br. J. II. og Smæfir IV. 490). Vil jeg því biðja »Óðinn« fyrir útskýriug á þessu at- riði, með nokkrum aðdraganda og útúrdúrum, sem lúta fremur að kaldri ættfærslu, en hlýrri sögu. Verð- ur það svo að vera, því lítið er til sögulegt að segja um okkur frændfólkið — og enga löngun hef jeg til að gefa oflof neinu nákomnu skyldmenni. Árni á Reynifelli. Hann var fæddur á Árbæ á Rangárvöllum, 30. apríl 1824 (d. 25. júlí 1891), sonur Guðmundar bónda þar Brynjólfssonar og konu hans Ingiríðar Árnadótt- ur bónda á Brekkum á Rangárvöllum, Gíslasonar. Brynjólfur afi Árna bjó í Vestri Kirkjubæ (varð hreppstjóri 1811, dó 1841, 82 ára), sonur Stefáns bónda á Árbæ, Bjarnasonar bónda á Víkingslæk á Rangárvöllum1). Frá þeim og konum þeirra rekja ættfræðingar ættstuðla Árna í mörgum greinum til stærstu ættbálka landsins, margra landnámsmanna og fornkonunga á Norðurlöndum. En hið næsta honum vóru rótfastir, góðir og gildir bændur og hreppstjór- ar í Rangárþingi. Árni var 5. barn foreldra sinr.a og ólst upp með þeim til 5 ára aldurs, en þá (20/n 1829) misti hann móður sína. Er það að vonum að þau 3V2 ár, sem faðir hans bjó þar með 3 börnum í ómegð, væru talin þeim einmanalegust og erfiðust. En þrátt fyrir frumbýlingsár Guðmundar Brynjólfssonar og 8 barna- fæðingar þeirra hjóna á 7 árum (er 5 dóu ung), var þó efnum — er fremur lítil voru í fyrstu — orðið svo háttað, að hann var jafnan heldur veitandi en þiggjandi, og lánaði dálítið öðrum á þessum árum. Við skiftin eftir húsfreyjuna var búið ekki fátæklegt 1) Báðar eru jarðir þessar nú í eyði af sandfoki, en vóru góðar bújarðir, og Víkingslækur stór jörð, oft tvíbýli þar. Á útskæklum þeirrar jarðar vóru fyrir nærri l*/2 öld bygð tvö nýbýli, Kaldbak og Þingskálar (síðar), sem eru enn í bygð. að neinu leyti, virt 768 rbd., þar í nokk- ur gripsvirði í lánum og peningar, en jarð- eign engin. Föst regla var það síðan hjá þeim feðgum, og mörgum öðrum á þeim árum, að eiga heldur inni hjá kaup- manni sínum, en skulda honum, þegar þess var nokkur kostur. Þá var lifað eftir þeirri grund- vallarreglu, að »betra væri að sofna án kvöldverðar, en vakna skuldugur*. — Hjer hleyp jeg yfir árabil, að því leyti sem það fellur betur að efninu síðar. Ekki var Árni, fremur en aðrir bændasynir þá, settur við aðra mentabrunna en litla tilsögn í lestri, skrift og algengum reikningi; og þetta urðu æsku- menn þó að læra að mestu án tilsagnar. Eigi að síður var hann hreppstjóri í 32 ár, og rækti það starf, eins og önnur, með alúð og samviskusemi. Forsöngvari var hann orðinn í Keldnakirkju rúmlega tvítugur, og var það fram undir æfilok. Bæði var hann lagsæll og hafði fagra rödd, þýða og rólega, án þeirra rykkja og hávaða yfir aðra, sem sumir aðrir virtust þá vera hreyknir af. Þá er hann var staddur við ut- ansóknarkirkjur, var hann líka stundum beðinn að vera forsöngvari, eins í veislum og við ýms tækifæri. Vinsæll var hann og vel metinn af öllum, er kyntust honum, æðri og lægri. Háttprúður og sómdi sjer vel á mannamótum, en tilgerðarlaus að öllu leyti. Glað- sinna helst við söng með börnum sínum og í sam- kvæmi, en gætti ávalt hófs í drykk, sem öðru, og var hvarvetna fremur fáskiftinn, fámæltur og alvöru- gefinn. Þreklega var hann vaxinn, burðamaður, ríf- Jega í meðallagi stór, beinn og svaraði sjer vel. — Myndin sýnir andlitið. Á heimili hans munu flest hjú- in hafa unnað honum sem föður sínum, og allra helst fósturbörnin, sem hjónin á Reynifelli gengu í foreldra stað. Þar var því ekki hætt við undanbrögð- um eða óhlýðni. Augljóst dæmi um þetta segir fóst- urdóttir hans og bróðurdóttir (Sigríður frá Lækjar- botnum á Landi), sem telur alt gott Árna til gildis: Meðal vinnumanna á Reynifelli vóru tveir mörg ár, sem þáðir voru örgeðja og svo meinyrtir, er þeim Árni Guðmundsson.

x

Óðinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.