Óðinn - 01.07.1935, Page 35

Óðinn - 01.07.1935, Page 35
Ó Ð I N N 83 mætt. Við nánari kynni af leiknum, sá jeg að þessi æfingarstaður var alveg ófær og talaði um það við »VaI«, en svo höfðu þeir gefið floknum nafn. — Svo fór jeg til Páls borgarstjóra Einarssonar og sótti um leyfi til að ryðja þarna svæði fyrir oss. — Hann tók mæta vel í það og fengum vjer fyrir milli- göngu hans leyfi til að ryðja þar nægilega stórt svæði og hafa það svo lengi sem bærinn þyrfti ekki á því að halda. Nú tókst undursamlegur samvinnu- tími. A hverju kvöldi mætti hópur af Valsmönnum úti á melum með verkfærum, skóflum, hökum og hjól- börum. Svæðið var mælt út og siðan rutt af mesta kappi. Það var mikið verk. Það var unnið og ham- ast í hálfan annan tíma, en á laugardagskvöldum var unnið til kl. 1 eða 2. — Meðan á þesssu stóð, hafði jeg stofnað annað fótboltafjelag innan H. F. U. M. og hjet það »Hvatur«, í höfuðið á göngufjelaginu litla, sem fann »HvatshelIi«. — Þeir Iögðu og sitt lið fram til þess að ryðja leiksvæðið. Sömuleiðis komu nokkrir úr Aðaldeild K. F. U. M. og lögðu oss lið, sjer í lagi á laugardagskvöldum; var þar á- hugasamastur að hjálpa oss Guðmundur klæðskeri Bjarnason og munaði ekki lítið um hann, sömuleiðis kom Sigurbjörn Þorkelsson, sem þá vann í pakkhús- inu í Edinborg. Þá ber og að minnast á einn utan- fjelagsmann. Það var Hjalti Sigurðsson, bróðir Ás- geirs konsúls Sigurðssonar. Hjalti! gekk eitt kvöld fram hjá og nam staðar og horfði á um stund, svo gekk hann til mín að grensl- ast eftir, hvaða flokkur þetta væri, því að þeir ynnu' svo bráðvel og með svo miklum áhuga. Jeg gaf hon- um allar upplýsingar, og næsta kvöld kom hann með skóflu og ruddist um fast. Þannig var unnið allan júnímánuð, nema kvöldið 17. júní, því þá var hátíð Jóns Sigurðssonar og hefði verið ósæmilegt að vinna þá. Daginn eftir var yngstu deildinni gefið sum- arfrí, enda voru þá fundir orðnir fásóttir, því svo margir af drengjunum voru komnir í sveit. Vjer höfð- um þennan sunnudag síðasta fundinn og gengum í skrúðgöngu að heiman suður í kirkjugarð og enduð- um fundinn við gröf Jóns Sigurðssonar. Um kvöldið var almenn samkoma í K. F. U. M., og mættu sára fáir. Jeg hafði búið mig undir ræðu um Jón Sigurðs- son og hjelt hana, en fjekk snuprur á eftir fyrir að hafa »spanderað« svo góðri ræðu á svo fáa, en jeg hjelt því fram, að einmitt þessir fáu hefðu átt skilið að fá það besta, sem ieg hefði getað gefið. Svo var seinna skorað á mig að birta þessa ræðu í blaði. Hún kom út, að mig minnir, í »Þjóðólfi« fyrst, og svo í eitthvað tveimur blöðum. Upp frá því varð Jón Jensson mjer mjög góður og kyntist jeg honum per- sónulega nokkuð. Nú er að hverfa aftur að vinnunni. Það var eitt laugardagskvöld snemma í júlí, að vjer vorum að vinna og vorum nær 40. Rjett fyrir lágnætti hjólaði jeg heim og setti upp stóran pott og bjó til kaffi í tvær fötur og náði mjer í hjálparmenn, er fluttu bolla og sykur ásamt kaffinu suður á Mela. Var þessu tekið með fögnuði. Menn hvíldu sig meðan þeir drukku kaffið og svo átti að vinna einn klukkutíma þar á eftir. Jeg fór heim með áhöldin og nenti ekki suð- ureftir aftur. Jeg sat svo og var að bíða eftir að nokkrir starfsmanna kæmu heim með verkfæri, er geymd voru í K. F. U. M. Jeg sat við borðið; í mjer var nokkurs konar unaðsþreyta, ásamt mikilli gleði. Stöðugt söng í mjer þetta erindi: Veit þá engi að eyjan hvíta A sjer enn vor, ef fólkið þorir Ouöi að treysta, hlekki að hrista Hlýða rjettu, góðs að bíða o. s. frv. Jeg vissi ekki til, fyr en jeg hafði blýant í hend- inni og blað lá fyrir framan mig. Jeg fór að reyna að yrkja undir þessum bragarhætti, eitthvað út í blá- inn. Jeg skrifaði: Nú vil jeg Iaga sanna sögu, Setja í stíl og engu skýla og svo eitthvað áfram, sem jeg man ekki, en það varð um þetta, sem piltarnir höfðu fyrir stafni, en það var eins og hendingarnar knýðu mig inn á vissa braut; alt af skothending í fyrra vísuorði og aðal- hending í hinu síðara, en hendingarnar vildu alt af standa í miðju vísuorðinu, en ekki ýmist í fyrsta orði eða í miðju, eins og í Liljulaginu. Jeg vissi ekki hvort þetta var rjett, og þegar svo erindin voru búin, þá fletti jeg upp í háttatali og fann, að í hrynhendu mátti þetta vera svo, en þá hjeti hátturinn »hrynhend- ur tröllaháttur*. Svo hjelt jeg áfram. Það var fyrst klukkan þrjú, að piltarnir komu og hafði jeg þá ort fjögur erindi; en án þess að nokkurt sjerstakt »plan« væri í þeim. Svo fór jeg að sofa, en um morguninn vakn- aði jeg með þeirri hugmynd, að halda áfram og yrkja drápu um knattspyrnuna og sumarstarfið yfirleitt. Jeg hugsaði mjer kvæðið í 10 þáttum og 10 erindi í hverjum þætti og öll í þessum hætti. Svo hjelt jeg áfram með það í hjáverkum og hafði mikla unun af, í júlí var völlurinn kominn það áleiðis, að hægt var að hafa æfingar meðfram vinnunni. Einn sunnu- dag í miðjum júlí fóru bæði fjelögin, Valur og Hvat- ur, skemtiför, og var Guðmundur Bjarnason með í förinni. Henni var heitið upp á Hamrahlíð. Jeg hafði

x

Óðinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.