Óðinn - 01.07.1935, Qupperneq 36
84
Ó Ð I N N
Tryggvi Gunnarsson og Matthías
Nú í haust hafa tveir þeir menn, sem mest kvað að á síðari áratugum
næstliðinnar aldar og fram um aldamótin, átt hundrað ára afmæli. Annar
var mesti afburðamaður landsins á verklega sviðinu, en hinn á andlega
sviðinu. Þessir menn eru Tryggvi Gunnarsson, fyrverandi bankastjóri, og
sjera Matthías Jochumsson. — Tryggvi var fæddur 18. október 1835, en
sjera Matthías 11. nóvember sama ár. Tryggvi dó 21. október 1917, en
sjera Matthías 18. nóvember 1920. Þeir voru vinir, áttu mikið saman að
sælda og höfðu mikið álit hvor á öðrum.
Tryggva var minst í mörgum af blöðunum á hundraðasta afmælisdegi
hans, en ítarlegast í »Dýraverndaranum€. Hafði hann arfleitt Dýraverndunar-
fjelagið að meginhluta eigna sinna. Vilhjálmur Þ. Gíslason skólastjóri flutti
einnig erindi um hann í útvarpinu. En vel hefðu atvinnurekendur og verka-
lýður þessa bæjar mátt minnast hans rækilegar en gert var, því enginn
maður hefur unnið af öðrum eins áhuga og dugnaði að vexti og viðgangi
Reykjavíkurbæjar og hann gerði um Iangt skeið.
Sjera Matthíasar hefur aftur á móti verið mjög rækilega og vel minst
af íslenzku þjóðinni um alt land. Hans var minst við allar guðsþjónustur í kirkjum landsins 10. nóvember,
og í Reykjavík, á Akureyri og í fleiri kaupstöðum landsins voru minningarsamkomur haldnar á afmælisdegi
hans. Hjer í Reykjavík var samvinna um afmælishátíðarhaldið milli Leikfjelagsins, Háskólans, kennara ogstúdenta,
og Bókmentafjelagsins. Stóðu fyrir því frú Soffía Guðlaugsdóttir leikkona, Arni Pálsson prófessor og Guðm.
Tvyggvi Gunnarsson bankastjóri.
fimtudagínn áður hjólað upp að Lágafelli og gengið
þaðan upp á Hamrahlíð, að svipast þar eftir leikvöllum
og öðrum skemtunartækjum. Mjer þótti útsýnið svo
að óvíða hef jeg sjeð fegurra. Þar uppi var fjöldi af
spóum, lóum og rjúpum. Sjerstaklega var mikið af
spóum. ]eg tók upp flautu, sem jeg hafði í vasanum
og bljes í hana og tók eftir því, að spóarnir þögnuðu
á meðan og fóru svo að vella í ákafa. ]eg hjelt svo
áfram með millibilum, og fór það á sömu leið. Spó-
unum fjölgaði í kringum mig og þeir fylgdu mjer, seinast
eitthvað 11 eða 12. Þegar jeg svo hafði rannsakað
og fundið, að það yrði mjög skemtilegt að fara þangað
með flokk í góðu veðri, fór jeg að hyggja til niður-
farar. Hugðist jeg að fara geilina, en er jeg kom á
barminn, varð mjer ekki um sel, því að upp flugu
tveir ernir og ljefu mjög vargalega. ]eg sá þá niðri
í kleyfinni klett einn eða drang, og var arnarhreiðrið
þar uppi og einn úngi í. ]eg hætti við að fara þar
niður og gekk austur með brúninni ,en arnarhjónin
fylgdu mjer stöðugt og voru í mjer hálfgerð ónot. Þau
yfirgáfu mig ekki fyr en jeg eftir annari geil var
kominn niður á jafnsljeftu.
Nú var svo kominn skemtifarardagurinn, en ekki
hafði oss verið spáð góðu um veðrið, því frjetst hafði
að Skautafjelagið ætlaði í skemtiför suður á strönd. Um
morguninn milli kl. 7 og 8 lá líka kafniða þoka yfir
bænum. Söfnuðumst vjer saman í K. F. U. M. og voru
menn á báðum áttum, hvort fara skyldi eða ekki. Loks
var afráðið að leggja af stað. Var gengið í fylking
gegn um bæinn, en síðan með uppleystu liði. Vjer
áðum og borðuðum morgunverð í litlum veitingaskála,
sem stóð uppi undir hlíðinni, gegnt Korpólfsstöðum,
svo var haldið upp að Lágafelli. Þar var ekki messu-
dagur og fengum vjer að halda guðsþjónustu í kirkj-
unni. Jeg lagði út af: Lítið til fuglanna í loftinu o. s.
frv. — Svo eftir guðsþjónustuna lögðum vjer á fjallið;
þá var komið sólskin og hið blíðasta veður. Þegar upp
á fjallið kom, fanst öllum mikið koma til útsýnisins.
Um förina þangað upp var þetta kveðið seinna:
Eftir göngu’ um kletta klungur
kemur bunga, þar sem ungir
sveinar móðir mega’ í náðum
mosabreiður nota heiðar;
feygja úr limum, tala saman,
titrar oft af hlátri loftið,
fá úr hreina fjallablænum
fúsir teigað himinveigar.
Jökullinn gnæfði hvítur og hreinn upp í vestri fyrir hand-
an hinn mikla flóa, sem var nú alveg sljettur eins og
spegill. Síðan blasti við hinn mikilfengi Snæfellsness-
fjallgarður, og svo tóku við Myrafjöllin, Akrafjall og
Esjan og svo hinn fjallarmurinn mikli út á Reykjanes.