Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.04.1883, Síða 12

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.04.1883, Síða 12
94 í sólnánd deplanna. Agúst-hópurinn sendir jörðunni ár- lega hér um bil jafnmörg stjörnuhröp, en þó ávalt komi töluvert af stjörnuhröpum á hverju ári í nóvember, þá koma þau þó flest 33. hvert ár. Ágúst-stjörnuhröp- unum sýnist þvi vera hér um bil jafnskipt niður á alla brautina, en í nóvember-hópunum virðist vera þykkur eða þéttur blettur, sem jörðin fer í gegnum 33. hvert ár. Sporbaugur nóvember-hópsins er eigi mjög viður; í sólfjærð er hann að eins 19-20 sinnum lengra frá sólu en jörðin, og nær hann því að eins lítið eitt út fyrir Úranus-brautina. það má sjá af hreifingum þessarar plánetu, að það hefir einmitt verið hún, sem gaf til- efni til þess, að hópur þessi drógst inn í vort sólkerfi, og Leverrier’heftr jafnvel reiknað, að náttúruviðburður þessi hafi orðið árið 126 eptir Krists burð. Mikil lík- indi eru til þess, að margir fleiri meteorhópar séu hér og hvar innan um sólkerfi vort, en vér verðum eigi varir við þá, af þvf þeir skera eigi jarðbrautina. Stjörnufræðingurinn Schiaparelli í Flórenz hefir manna bezt ransakað brautir loptsteinanna og alt þar að lútandi; hann tók fyrstur eptir þvi, að halastjarnan III 1862 fer sömu braut og ágústhópurinn, og hún er því að öllum líkindum einn liður í þessum hóp. Hún fer um sólu á 145 árum eins og ágúst-hópurinn. Eins er um halastjörnuna I 1866, að hún fer sömu braut og nóvemberhópurinn. Biela's halastjarnan, sem vér áð- an gátum um, að hefði horfið 1866, átti eptir reikningum stjörnufræðinga að koma mjög nálægt jörðu 27. — 28. nóvember 1872; halastjarnan sást ekki, en í stað þess féll einmitt þá mesti grúi af stjörnuhröpurn niður á jörðina. Af þessu og þvílíku er það ætlun manna, að halastjörnur og stjörnuhröp standi í nánu sambandi hvort við annað. Schiaparelli og aðrir náttúrufræð- ingar eru því á eitt sáttir með það, að þegar halastjarna heldur braut sína, skilist frá henni sí og æ eintómar

x

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags
https://timarit.is/publication/228

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.