Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.04.1883, Síða 16

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.04.1883, Síða 16
98 Jón Egilsson getr þess, að Loptr hafi verið uppi i tíð þeirra Mikaels og Vilhjálms (Vilkins) Skálholts- byskupa (1383—1406)1 og að hann hafi átt höfuðbólin Grund2 og Möðruvelli i Eyjafirði og Eið3 i Austfjörð- um4. Jón Gizurarson getr þess, að Loptr hafi farið utan og þjónað um hríð Noregs konungi (Eiríki af Pommern5) með fjóra sveina og verið dubbaðr riddari, og hafi eftir það fœrt hvítan fálka í blám feldi. Hann 1) það er eigi alls kostar rétt eða nákvæmt, að Loptr hinn ríki hafi verið uppi í tíð þeirra Mikaels og Vilkins byskupa, þar eð hann á þeirra dögum, einkum hins fyr- nefnda, hefir verið ungr, og kemr lítt eða ekki við frá- sagnir fyrr enn síðar. 2) það mun vera óyggjanda, að Loptr hafi átt Grund, og eignazt hana að minnsta kosti að nokkru leiti að erfð eftir ömmusystur sína Ingibjörgu Loptsdóttur (á lífi 1423), sem erft hafði þá eign eftir Halldór prest Loptsson, bróður sinn, svo sem síðar verðr sýnt fram á. Eftir Lopt hinn rlka eða að honum lifanda fékk Eiríkr sonr hans Grund (J. E. Árb. II, 33, við ár 1434). 3) þó að myndir sem ’Eiðar eða ’Eyðar( fyrir ’Eið( sé al- gengar og hafi nokkuð snemma tekið að tíðkast, svo sem sýna myndimar ’Holtar’ fyrir ’Holt’ og ’Nesjar’ fyrir ’Nes’ (Yngl. s. 52. k., Ó. s. H. 44. k.: Hkr., útg. í Stokkhólmi, I, 60, II, 52), þykir einsætt vera að taka upp hinar frumlegu, eðli- legu og réttu myndir (sbr. ritgerð Jóns þorkelssonar : Um bæanöfn á íslandi, í Norðanf. 8. ári, 45—46. nr., f J 1869), og mun það mjög auðveldlega geta orðið alþýðu manna eig- inlegt að nefna svo, ef það tekr að tíðkast í riti, og einkum ef embættamenn gera svo í skýrslum þeim, er almenningi eru birtar. 4) J. E. Byskupa annálar í Safni t. s. Isl. I, 115. 5) Eiríki af Pommern var gefið konungsnafn, er hann var barn að aldri, árið 1389 (Hóla-annáll hinn forni sbr. Safn t. s. Isl. II, 75).

x

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags
https://timarit.is/publication/228

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.