Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.04.1883, Qupperneq 18

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.04.1883, Qupperneq 18
loo ar sagnir hafa þeir til fœrt Jón Espólín í Árbókum og Bogi Benediktsson í sýslumannaæfum, og geta þeir og um föðurhefnd Lopts, sem víst er um, að eigi hef- ir átt sér stað, og um spásögn Lopts um Uluga (hinn svarta). Illugi var þá ungr piltr og eitthvert sinn varð honum það í prikaleik, að hann laust fót Lopts, og segir, að Loptr hafi þá mælt svo: „f>ú slœr ógæti- lega, piltr; það er enn þá ekki úti fyrir þér ; þú munt gera mér til meira, áðr enn þú deyr“8, og þótti það rœtast, er Illugi síðar, er hann var orðinn sveinn Lopts, átti tvö börn við Ólufu dóttur hans, Ástríði og Sig- valda langalíf, er síðar varð hinn kynsælsti maðr sem fiest afkvæmi Lopts (J. E. Árb. II, 22 — 23). Margt kann satt að vera í sögum þessum, og víst er um það, að Loptr hefir verið hinn mesti auðmaðr og hefirhaft á sér höfðingja brag mikinn. Loptr Guðormson átti bróður, er Jón hét, og mun hann hafa verið talsvert eldri enn Loptr. Jón Guð- ormsson hefir verið hinn mannvænlegasti maðr, þvíað hann fékk árið 1392 Kristínar, dóttur Bjarnar Einars- sonar jórsalafara, er þá hefir verið einhverr beztr kvenn- kostr á íslandi, og bjuggu þau i Hvammi í Hvamms- sveit, en Jón varð eigi gamall og andaðist í plágunni 1403 (ísl. ann.). Loptr var á yngri árum sínum ráða- maðr hjá Guðrúnu Haraldsdóttur, auðugri ekkju á suðr- landi, og þá af henni í þjónustukaup Efradal (Stóra- dal) undir Eyafjöllum9. J>á hefir hann að líkindum farið utan og verið með Eiriki af Pommern og Mar grétu drottning Valdemarsdóttur, og gerzt riddari, sem eigi mun vera ástœða til þess að efa, og má vera, að 8) J. E. Árb. I, 106 og II, 10; við árin 1381 og 1413; B. B. Sm. æf I, I, 159—161. bls. 9) B.B. Sm. æf. I, I, 159 bls.: J. P. 1. ath.gr. sbr. s. st. 168. bls;: J. P. 3. ath. gr.

x

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags
https://timarit.is/publication/228

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.