Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.04.1883, Side 22

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.04.1883, Side 22
104 1415» og' þess, að byskup hafi sætzt við Lopt og Hall Olafsson um peningareikning, en að Loptr af Halls hálfu hafi lokið byskupi jörð að Staðarhóli fyrir 60 hundruð, en önnur 60 hundruð skyldi Loptr taka und- ir sjálfum sér fyrir peninga þá, er hann var konungi um skyldr í reikningi af hálfu Ingibjargar konu sinn- ar, síðan er Páll faðir hennar var umboðsmaðr Vigfús- ar hirðstjóra ífarssonar (s. st., við ár 1417). Loptr hef- ir skrifað undir hyllingarbréf íslendinga til Eiríks kon- ungs af Pommern 1419 og undir bréf íslendinga til Eiríks konungs um erindi Hannesar Pálssonar og þor- leifs Árnasonar á alþingi 142016. Undir hið fyrra bréf, sem á er minnzt í, að landsmenn hafi orðið að verzla við útlenda menn, af því að heitorð gamla sáttmála um að láta sex skip ganga til landsins árlegaafNor- egi hafi eigi efnt verið af konungs hendi, skrifar Loptr hinn riki næstr lögmönnum (Lopptr Gudpormsson17; en Arnfinnr forsteinsson18 skrifar fyrstr undir). Árið 1420 16) þau bréf eru bæði prentuð í Safni t. s. ísl. H, 172— 174. Undir hið síðara hyllingarbréf til Eiríks konungs, er gert var á alþingi 1431 (Safn t. s. ísl. H, 175—176), hefir Loptr eigi skrifað. 17) Ritháttrinn ‘Gudþormsson’ í bréfi þessu, sem prentað er eftir frumbréfinu (í Safni t. s. ísl.), bendir til þess, að framburðrinn hafi þá enn verið ‘Guðormsson’ (eigi og líklega, aldrei: ‘Gvuðormsson’), og mun réttara að skrifa og nefna ‘Guðorm’ enn ‘Guttorm’, þann er svo hefir heitið, fram um siðaskiptin. í síðara bréfinu frá 1420, sem gert er á danska tungu, hefir Loptr skrifað sig ‘Lofter Guthormsori, og virð- ist sá ritháttr benda til hins sama framburðar. 18) Að Arnfinnr þorsteinsson (lögmanns Eyólfssonar) skrifaði fyrstr undir bréf þetta, mun eflaust koma af því, að hann hefir haft hirðstjóraumboð á alþingi, líklega af hendi Áma byskups Ólafssonar, er fór utan alfari það ár. þó skrif- ar hann sig ekki svo, heldr »ydra (0: Eiríks konungs) /or-

x

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags
https://timarit.is/publication/228

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.