Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.04.1883, Side 33

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.04.1883, Side 33
karllegg frá Guðmundi hinum ríka Eyólfssyni á Möðru- völlum. En móðir Sofíu var Ingiríðr Loptsdóttir á Möðruvöllum f>órðarsonar. Eiríkr hinn ríki andaðist 1381 (ísl. ann.). Talið er, að Eiríkr hinn ríki Magn- ússon hafi búið á Möðruvöllum í Eyafirði35, og er það eflaust rétt. Hann hefir að líkindum eignazt eitthvað í Möðruvöllum með Ingiriði konu sinni, en keypt hitt af samörfum hennar, og orðið þannig eigandi þeirra. Svo hefir Loptr hinn ríki eignazt Möðruvelli að meiru eða minnu leiti eftir ömmu sína Ingiríði eða móður sína Sofíu, og á sama hátt eflaust fleiri fasteignir í Eyafirði. Örnólfr Jónsson, faðir Guðorms, bjó að Staðarfelli, er áðr nefndist Fell (Fjall) á Meðalfellsströnd. Bogi Benediktsson telr, að hann hafi búið í þykkvaskógi (Sm. æf. I, 1, 44. og 157. bls.), en það mun vera van- gá ein. Kona hans hét Herdís. Ætt hennar er ó- kunn36. Hafi Örnólfr verið úr Eyafirði ættaðr, er all- 35) B. B. Sm. æf. 1,1, 9. og 143. bls. 36) Undir Felli á Meðalfellsströnd (Syðriströnd, nú Fells- strönd) hafði búið öndverðlega á þrettándu öld pórðr, er átti Hallgerði Narfadóttur, systur skarðs-Snorra prests, er andað- ist gamall 1260, oger mjöglíklegt, aðsá þórðr hafi verið sonr Snorra,bróður hvamms-Sturlu, því að sá Snorri bjó undir Fjalli, og þess getr, að hann þorði eigi að sitja fyrir Einari þorgílssyni, er hann hafði gengið til handsala fyrir Sturlu bróður sinn, en galt ekki fé (1171: Sturl. 2, 25.: I, 81). Böm þórðar voru Guðmundr, Snorri og Ingveldr, er átti Snorri í Skóg- arnesi (Sturl. 6, as: II, 239. sbr. 1,4: I, 7). Guðmundr þórðarson undir Felli hefir verið mikils háttar maðr. þann- ig er tekið fram, að hann hafi verið mest fyrir vestanmönn- um á alþingi 1238, og að hann og Sturla þórðarson hafi ver- ið fyrir Strendum og Saurbœingum, er þeir fóru suðr í Dali Tímarit hins íslenzka bókmentafélags. II. 8

x

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags
https://timarit.is/publication/228

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.