Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.04.1883, Side 37

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.04.1883, Side 37
iig sumar þessar móðursystur sínar, búið þrjár hinar síðar nefndu4S. Halldórr Loptsson hefir verið einn af hinum merk- ustu höfðingjum andlegrar stéttar á sinni tíð, síðasta þriðjungi hinnar fjórtándu aldar, og getr hans á nokkr- um stöðum í íslenzkum annálum. Hann komst til valda á dögum Jóns byskups Eiríkssonar skalla (1358 —1391) og varð ráðsmaðr á Hólum 1381, og byskup veitti honum einnig prófastsdœmi um Eyafjörð. Árið 1389 fór Halldórr utan og gekk til Róms, og mun hafa verið í ferð með Birni Einarssyni Jórsalafara og þórði Sigmundarsyni og fleirum, en hélt þó eins fyrir því prófastsdœmi sínu um Eyafjörð, og hefir það þótt nýlunda, er þess er getið. J>egar er hann kom sunnan, kom hann sér i mjúkinn hjá Mikaeli Skálholtsbyskupi (frá 1383), er þá (og siðan) dvaldi í Danmörku, og fékk hjá honum prófastsdœmi vestr frá Botnsá43, og 42) þar sem segir, að Margrét Eiríksdóttir, móðursystir Lopts hins ríka, en kona Benedikts Bjarnarsonar, hafi feng- ið erfð eftir Steinmóð þorsteinsson (J. E. Arb. II, 11), kann það að vera ónákvæmt, og hafi erfðin verið eftir börn hans og Ingileifar systur hennar, er dáið hafi í plágunni, og hefir þá Loptr að hluta móður sinnar ásamt fengið hlutdeild í þeirri erfð. 43) í, Flateyarannál (Flb.j III, 575), sem þetta er tekið eftir, stendr, að Halldórr prestr hafi fengið prófastsdœmi ‘milli Botnsár og Geirólfs . . .’ (með eyðu á eftir Geirólfs), og getr ‘Geirólfs’ þar varla verið annað enn fyrri hluti orðsins ‘Geirólfsgnúps’, og hefði hann eftir því haft prófastsdœmi um allan Vestfirðingafjórðung. En þó kynni að vera, að rit- arinn, Magnús prestr þórhallsson, hafi viljandi hætt í miðju orði, af því að hann hafi áttað sig á, að ‘Geirólfsgnúps’ væri rangt, en eigi gáð að stryka það eða punkta út, og eigi vitað glöggt, hvert takmark í staðinn skyldi setja, en skilið eftir eyðu, til þess að bœta nafninu inn í síðar, ef þess yrði kostr,

x

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags
https://timarit.is/publication/228

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.