Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.04.1883, Side 45

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.04.1883, Side 45
127 an heima f Skálaholti með mikilli rausn, og um næsta ár (1276) gifti f>órðr bóndi Hallsson Valgerði systur sína Sigurði seltjörn53, syni Sighvats hins auðga og Vilborgar f>orgeirsdóttur úr Holti undir Eyafjöllum, og hefir Sigurðr verið hálfbróðir Gizurar í Seltjarnar- nesi, en stjúpsonr hins stórauðga rausnarmanns, Hafr- bjarnar Styrkárssonar í Seltjarnarnesi, er um þær mundir hefir átt Guðrúnu J>orláksdóttur, systur Árna byskups. Boðið var á Möðruvöllum og var þar sam- an komið hið mesta mannval af landinu: Hrafn Odds- son, er þá hafði fengið ísland til stjórnar undir kon- ungsvaldi (ísl. ann., við 1273), byskupar báðir, Árni úr Skálholti og Jörundr af Hólum, Runólfr ábóti úr Við- þórðarsyni, og hann einnig eftir langafa sínum, Lopti Svartssyni. 53. I Arna sögu byskups, er prentuð er með Sturlungu (Khöfn 1820, 24. bls.), er nefndr ‘Sigurðr á Seltjöm’ og eins er prentað í Byskupa sögum (I, 702) að öðm leiti enn því, að orðið ‘á’ er sett meðal hornklofa, sem sýnir, að það muni eigi hafa staðið í handritinu, sem prentað er eftir, heldr vera innauki útgefarans. En líkara þykir og jafn- vel vafalaust, að engu beri inn að auka, og að ‘seltjörn’ hafi verið auknefni Sigurðar (sbr. ‘þórarinn króksfjörðr’; Sturl. 2, 9 : I, 55 í sumum handritum). Hann er og nefndr ‘Sig- urðr seltjörn’ (eigi ‘á Seltjörn’) í máldaga Auðunnar byskups fyrir Möðruvalla kirkju í Eyafirði (J. P. Tímar. II, 91), enda er mjög líklegt, að hann hafi átt heima í Seltjarnarnesi hjá Hafrbimi stjúpa sínum, þar til er hann kvongaðist, en sá bœr hefir ef til vill verið nefndr jöfnum höndum ‘í Nesi’ eða ‘við Seltjörn’ (svo sem síðar einart ‘í Nesi við Seltjörn’), og þaðan er auknefnið sprottið. Að bœr hafi nokkum tíma heitið eða verið kallaðr ‘á Seltjörn’ (eða í nefnifalli: ‘Seltjöm’) þykir óvíst og ólíklegt.—Sighvatr hinn auðgi, faðir Sigurðar seltjarnar, kann að hafa verið Eyólfsson (sbr. Sturl. 6, 2: II, 190).

x

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags
https://timarit.is/publication/228

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.