Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.04.1883, Síða 46
128
ey, bróðir Hafrbjarnar54, ogf Eyólfr ábóti frá f>verá
og margt annarra manna55. f>órðr Hallsson hefir helzt
verið fyrir staðamönnum í Hólabyskupsdœmi af hendi
Hrafns Oddssonar, en farið fram með meiri varhygð
og stilling enn Hrafn og hans félagar í Skálholts
byskupsdœmi, því að Loptr Helgason, mágr herra
þ>órðar, getr þess i282 Íbréfi til Árnabyskups móður-
bróður sfns, að Jörundr byskup hafi handsalað herra
þórði á Möðruvöllum kirkjuliluta, og játað upp öllum
stöðum i Norðlendingafjórðungi, þeim er Hrafni og
öðrum skynsömum mönnum þœtti réttilegt tilkall til
vera (Árna s. bysk., 36. k.: Bysk. I, 729—730). J>á
átti þórðr Hallsson góðan hlut að því á alþingi 1288
með herra Olafi Ragnheiðarsyni, erindsreka Eiríks
konungs, og öðrum góðgjörnum mönnum, að koma á
skipulagi milli þeirra Hrafns og Árna byskups, unz
konungr og erkibyskup lyki málum þeirra. Krafðist
þá hvorrtveggja Hrafn og byskup borgunarmanna
fyrir því, er hinum kynni að dœmast að láta af hendi,
°g gerðist þá Olafr Ragnheiðarson vörzlumaðr bysk-
54) Runólfr ábóti í Viðey, bróðir Hafrbjarnar (sbr. Sturl.
6, 3: H, 194) er í nokkrum annálum nefndr Ólafsson, og
sé það rétt, sem ætla má, hefir hann að eins verið hálfbróðir
hans.—J>að getr vel verið réttara, sem Jón Espólín segir
(Árb. I, 4), að það hafi verið Runólfr ábóti í Viðey, sem
Ami byskup sendi til þess að taka við staðarfjám í Hítar-
dal af Katli Loptssyni (Árna. s. bysk. 6. k.: I, 685), enn
að það hafi verið Runólfr ábóti í Veri Sigmundarson, svo
sem vísar til í nafnaskrá við Byskupasögur I., því að bæði
var Runólfr ábóti í Viðey nær og eldri í embætti (vígðr 1256)
þó að Runólfr ábóti í Veri (vígðr 1264) yrði brátt meirr
virðr. Vissa þar um getr trautt fengizt.
55) Arna s. bysk. 13, 16. og 18. sbr. 26. k.: Bysk. I, 697,
699, 702, sbr. 716,