Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.10.1884, Síða 59
251
[því Baldvin frá Hraunum er giptur og á konu og barn].
Guð veri með ykkur báðum.
Eg er þinna velæruv.h.
heiðrari og elskari
Baldvin Einarsson.
Atlmgasemd um eitt atriði í ritgjörð B. Grrön-
dals „Um fornan kveðskap íslendinga og Norð-
manna“. (Tímarit Bókm.fjel. III. árg. 1882). í ritgjörð
þessari hefir herra Benidikt Gröndal tekið upp hina al-
kunnu vísu: »Alda rjúka gjörði grá«, og getur hann þess,
að hún hafi verið í æsku sinni eignuð Hallgrími Pjeturs-
syni, en segist ekkert vita frekar um það, og eigi heldur, hvort
heil ríma hafi verið orkt undir sama hætti. (Tímar. III 158—
159, néðanmáls).
Af því vísa þessi mun vera kunnug víðast á Islandi, þá í-
mynda eg mjer, að mörgum muni þykja gaman að vita meira
um hana, en hygg að mörgum muni það ókunnugt, og það
því heldur, sem hinum margfróða höfundi hefir verið það ó-
kunnugt, þá er hann samdi ritgjörðina.
Eins og vísan bendir sjálf til, þá er hún um það, er lík þeirra
Grettis og Illuga vóru flutt úr Drangey. Af Grettis sögu hafa
verið orktar 20 rímur, og byrja þar á efninu, er Asmundur
hærulangur reisti bú að Bjargi; ná þær síðan yfir söguna alla
og yfir Spesar þátt til enda.
þar sem 17. ríman byrjar fyrst eptir mansönginn, er þessi
vísa : »Alda rjúka gjörði grá«, og er ríman öll með sama brag
eða sömu rímstuðlum. Hún er með mansöngnum 66 erindi
og má heita öll jafn vel kveðin. Um aldur rímnanna og hvar
þær eru orktar, tekur höfundurinn sjálfur tvímælin af, því
svo kveður hann í niðurlagi síðustu rímunnar:
Sextán hundruð alda ár
er og standa fimmtíu fleir,