Eimreiðin - 01.09.1902, Blaðsíða 8
óbærilegar, svo sem hér um og eftir 1870; og enn eru sveitar-
þyngslin miklu meiri, en þau ættu að vera, og þjóðinni til skaða
og skammar, með því þau bera vott um lágt menningarstig og
spiltan eða vesalmannlegan hugsunarhátt. Dugnaður og einkum
sparsemi þarf að aukast og sómatilfinning manna í þessu efni að
glæðast.
Mentun og uppfræðing. Með lögum 9. janúar 1880 var
prestum gert að skyldu að sjá um, að öll börn lærðu lestur, skrift
og nokkuð í reikningi, áður en þau væru fermd. Til þess að
þessi þarflegu lagafyrirmæli yrðu hér meira en dauður bókstafur,
komu menn sér saman um litlu síðar að reisa hér barnaskóla
úr högnum mósteini; var mestallur steinninn í húsið höggvinn
ókeypis af hreppsbúum. Til að koma húsinu upp vóru teknar til
láns 1500 kr. úr landssjóði, sem endurborgast á 28 árum. það er
portbygt með járnþaki og steinlímt alt að utan; var það albúið,
svo kensla hófst í því veturinn 1885—86, og hefir verið kent í því
á hverju ári síðan. Fyrst framan af var tekin lág meðgjöf með
börnunum, 12 kr. á ári með hverju, minna, ef fleiri vóru frá sama
heimili; sveitarbörn svo og börn snauðra manna höfðu ókeypis
kenslu; en skólinn var ávalt fremur illa sóttur, venjulega um 12
börn á ári. Var það þá til bragðs tekið nokkru eftir 1890, að
öll börnin skyldu hafa ókeypis kenslu, 2 kennarar skyldu ráðnir
og börnunum skift í 2 deildir. Síðan hefir aðsóknin verið svo
mikil, að 40 börn hafa sótt hann árlega. I neðri deild er kendur
lestur, kristindómur, skrift og reikningur, i efri deild auk þess
landafræði og náttúrusaga, og ennfremur danska þeim, 'sem þess
óska, en sú kensla hefir verið of lítið notuð.
Lestrarfélagið. Pað var stofnað árið 1862 af Bjarna sýslu-
manni Magnússyni, Brynjólfi sóknarpresti Jónssyni og kaupmanni
J. P. T. Bryde. Margir gáfu bækur í fyrstu til félagsins, og Bryde
útvegaði því allmiklar bókagjafir írá Danmörku. Árstillagið var
í fyrstu 66 aurar, síðan x kr. og loks var það fyrir nokkrum ár-
um hækkað í kr. 1.50. Bækur félagsins eru nú geymdar í 2 skáp-
um í þinghúsinu; 3 manna nefnd veitir því forstöðu, forseti, gjald-
keri og bókavörður, sem einnig (fyrir 10 kr. þóknun á ári) hefir
öll útlán á hendi á hverjum sunnudagsmorgni frá byrjun október-
mán. til loka marzmánaðar. Félagið er fremur í fjárþröng. Fé-
lagsmenn eru nú rúmir 30; þyrftu að fjölga. Mikið gengur árlega
til bókbands bæði á nýrri og eldri bókum; meðferð bóka eigi