Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1902, Blaðsíða 58

Eimreiðin - 01.09.1902, Blaðsíða 58
218 vann í, þegar hann yfirleitt vann. Hér nam hópurinn staðar eitt augnablik af nærgætni við húsráðanda, sem kom másandi á eftir. »Ef til vill er það bezt, að þið bíðið eitt augnablik hér úti fyrir, meðan ég geng inn og sé, hvort alt er í röð og reglu,« sagði Gamli, eins og ekkert væri um að vera, þótt honum væri ekki rótt í hug. Tillögu þessari var tekið vel. Húsráðandi gekk inn, og dyrunum var lokað á eftir honum. Gestirnir hölluðu bök- um að veggnum, hnipruðu sig saman í hlé við kofann, biðu og hleruðu. Nokkur augnablik heyrðist eigi til annars en vatnsins, sem draup niður af þakbrúninni, og trjágreinanna, sem brökuðu yfir höfðum þeirra. Gestirnir urðu brátt órólegir. Getgátur og grun- samar ágizkanir bárust í hljóðskrafi frá manni til manns. »Hún hefir líklega slegið gat á hausinn á honum í fyrsta höggi.« »Hún hefir gint hann inn í jarðgöngin ok líklega lokað hann inni þar.« »Hún hefir kastað honum á gólfið og situr ofan á honum.« »Hún er líklega að sjóða eitthvaö til þess að hella ofan á okkur. Farið frá dyrunum félagar!« I sama augnabliki var lokan hreyfð, dyrnar opnuðust hægt og rödd ein sagði: »Komið inn úr rign- ingunni.« Röddin var hvorki rödd Gamla né konu hans, heldur rödd lítils drengs. Óeðlileg hæsi, sem aðeins ungir, kappmálir flækingar fá, hafði spilt barnslegri hljómfegurð hennar. Andlit lítils drengs sneri að þeim —• andlit, sem hefði verið fallegt og jafnvel göfug- mannlegt, ef eigin þekking ills hefði eigi gert það skuggalegt og óhreinindi og ill meðferð hefðu eigi sett merki sín á það. Hann hafði ábreiðu á herðunum og var auðséð, að hann var nýstaðinn upp úr rúminu. »Komið inn,« sagði hann aftur, »og tarið hljóð- lega. Gamli er að tala við kerlinguna,« hélt hann áfram og benti á hliðarherbergi, sem virtist vera eldhús. Paðan heyrðist rödd Gamla, sem talaði í bænarrómi. »Sleptu mér,« sagði drengurinn enn fremur önuglega við Dick Bullen, sem hafði lyft honum upp með ábreiöunni og lézt ætla að kasta öllu saman í eldinn, »sleptu mér, b..........gamli asninn þinn, heyrirðu þaðf« Pegar Dick Bullen var ávarpaður á þenna hátt, þá setti hann Johnny niður á gólfið og dró niður í sér hláturinn. Á meðan gengu hinir hljóðlega inn og tóku sér sæti við langt, óheflað fjala- borð í miðju herberginu. Johnny gekk drembilega að litlum mat- skáp, tók þaðan ýmsa muni og raðaði þeim á borðið. »Hér
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Eimreiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.