Eimreiðin - 01.09.1902, Page 9
i6g
svo góö sem vera skyldi. Félagið kaupir árlega flest ísl. tímarit
og ísl. sögur o. fl. ísl. bækur nýjar, svo og norska hálfsmánaðar
tímaritið »Kringsjaa«, Alls á félagið nú um 750 bindi, 400 ísl.
bækur og 350 danskar. Pað á »Opfindelsernes Bog« og »Laga-
safn handa alþýðu«. Félagið á þannig mikinn fróðleiks fjársjóð,
sem það miðlar félögum sínum fyrir eitt smábókarvirði (1.50) á ári.
Pað hefir ómótmælanlega orðið að talsverðu gagni, aukið lestrar-
fýsn manna, og veitt mönnum margs konar fræðslu, sem þeir eigi
hefðu getað aflað sér annars vegar. Forsetar félagsins hafa verið:
Bjarni sýslumaður, séra Brynjólfur, Aagaard sýslumaður og Por-
steinn læknir.
A t v i n n u v e g i r. Eyjarbúar reka alls 4 atvinnuvegi: land-
búnað, sjávarútveg, fuglaveiðar og garðrækt. Kúaræktinni hefir
farið hnignandi síðari hlut aldarinnar — 1852 vóru hér um 60
kýr eða 15 á hvert 100 íbúa— þó hefir kúm nú aftur fjölgað
mikið síðan 1886 þá vóru þær fæstar eða 24, en nú eru þær 45
eða rúmlega 8 á hvert 100 manna. Til samanburðar má geta þess,
að árið 1703 voru hér 73 kýr — íbúar þá 340 —■ eða 61 kýr
á hvert 100 manna. Hinn síðasta áratug hafa menn lagt kapp á
að rækta tún sín betur, slétta þau og bera vel á þau; ýmsir hafa
og stækkaö tún sín að mun. Hófst sú framför fyrir uppörvanir
og ötult aðhald Jóns sýslumanns Magnússonar. Má hér enn mikið
að gjöra til að fjölga kúm, þar sem allstór svæði, efni í beztu
tún, eru hér enn óræktuð. Sum þeirra hafa sýnilega verið ræktuð
til forna; það sést á gömlum garðarústum. Nú eru þau sorglegur
minnisvarði yfir skammsýni, ódugnað og afturhaldsanda liðinna
kynslóða; en þau verða eflaust innan skamms gerð að fögrum
túnum. Púfnasléttun var hér 1853: 138 □ f., 1891 : 930 □ fi, 1899
3200 □ fi Ræktað land hér í eyju er nútalið 164,000 □ fi Hross-
um hefir fækkað. Um miðja öldina vóru þau yfir 40, nú 29.
Fækkunin er framför, því engar skepnur leika jörðina jafnilla sem
útigangshross á vetrum. 1703 voru hér 59 hross, en eftir fellinn
1783—4 stóðu aðeins 9 uppi. Sauðíé var hér 1854: 1000 að
tölu, nú 1150. 1703 var það 646, eftir fellinn mikla 130, en þá
féll 81 sauðkind af hverjum 100 að meðaltali yfir land alt. 2 síð-
ustu ár hafa hingað verið fengnir kynbótahrútar af Austurlandi
og i ár fáeinar ær. En hér þarf eflaust frekari aðgjörða við, því
fátt mun með tímanum borga sig betur, en að fá hingað stór-
vaxnara fé í stað hins afarsmáa og rýra fjár, sem vér höfum