Eimreiðin - 01.09.1902, Blaðsíða 13
i73
að vér höfum ágætar samgöngur bæði við útlönd og strendur
landsins, svo vér getum nú greiðlega komið sendingum og vörum
um alt land og fengið þær aftur, svo og til og frá útlöndum.
Hér á Heimaey er búið að leggja talsvert af vagnvegum og
menn þar af leiðandi farnir að nota vagna til flutninga.
Efnahagur eyjarbúa hefir að öllu samtöldu talsvert batnað
á síðustu 20 árurn, einkum nú allra síðustu árin. Eigur manna
eru orðnar meiri, skipa- og bátaútvegur hefir stórum aukist. Ibúð-
arhús eru orðin stærri, bjartari, rúmbetri og vandaðri. Pakjárnið
hefir gjört byltingu og breytingu til bóta í allri húsabyggingu.
Torfþökin eru horfin að mestu og þar með öll þau jarðspell, sem
torfskurðinum fylgdu; allar þurrabúðir eru með járn- eða tréþaki
sömuleiðis öll salthús; aðeins örfáar baðstofur og nokkur önnur
hús eru enn með torfþökum, sem að líkindum verða horfin eftir
fá ár. Fataburður er orðinn vandaðri og smekklegri, hreinlæti
hefir vaxið, og því samfara er betri heilbrigði. Mataræði almenn-
ings er einnig orðið hentugra og hollara; á meðal annars á garð-
ræktin góðan þátt í því. Nýrra hentugra verkfæra hafa menn
aflað sér, svo sem saumavéla, vagna, betri veiðarfæra o. fl. Grút-
arlamparnir eru horfnir, en steinolíulampar og steinolíuvélar eru
nú á hverju heimili. Talsverðar upphæðir eiga eigi allfáir bæði í
landsbankanum og sparisjóðnum hér. Hefir hann kent mönnum að
spara og ávaxta fé sitt; því í hann geta menn sett smáar upp-
hæðir á vöxtu, jafnóðum og mönnum fénast eitthvað. Skemtanir
einkum dansleikir eru orðnir tíðari, því nú kann því nær hvert
mannsbarn hinnar yngri kynslóðar hér að stíga dans, en fyrir 30
árum kunni varla nokkur alþýðumaður að dansa; einnig hafa hér
á síðari árum verið leiknir sjónleikir og haldnir samsöngvar, og
hefir alt þetta aukið fjör manna og lífsgleði.
Félagsskapur. Pað er óefað, að félagsandi hefir um um-
liðinn aldarhelming verið í nokkurri þróun, þótt framförin í því
efni sé alt of hægfara. Menn hafa unnið að ýmsum nauðsynja
fyrirtækjum með fríviljugri vinnu; má þar til nefna Strandveginn,
eftir hvötum Kohls sýslumanns, hið þarfasta verk, steinhöggið í
skólahúsið, vegavinna á sýsluvegi o. fl. Ymsum félögum hefir
fyrir frumkvæði einstakra manna verið komið á fót. Á lestrar-
félagið hefir áður verið minst; en þar næst vil ég þá fyrst nefna
Goodtemplarafélagið, stofnað hér árið 1888. Eyjarskeggjar
höfðu eftir miðja öldina hið versta orð á sér fyrir ofdrykkju, og